Frá Stykkishólmi. Ljósm. gj

Markmið sett um fjölgun íbúða og eflingu stafrænnar stjórnsýslu

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og Sveitarfélagið Stykkishólmur hafa komið sér saman um sameiginlega viljayfirlýsingu um fjölgun íbúða og eflingu stafrænnar stjórnsýslu í sveitarfélaginu. Fyrirhugað er að þessir aðilar vinni saman að uppbyggingarverkefni með eftirtalin markmið í huga: Í fyrsta lagi að leita leiða til að auka aðgengi að fjölbreyttum húsnæðiskosti og húsnæði með viðráðanlegan húsnæðiskostnað. Hins vegar að efla stafræna stjórnsýslu húsnæðis- og byggingarmála í sveitarfélaginu.

Markmið sett um fjölgun íbúða og eflingu stafrænnar stjórnsýslu - Skessuhorn