Fréttir

true

Gáfu tvo björgunarhringi á Breið

Slysavarnadeildin Líf á Akranesi kom færandi hendi fyrir helgi. Gaf deildin Akraneskaupstað tvo björgunarhringi sem komið verður fyrir á Breið, en báðir björgunarhringirnir sem þar voru höfðu horfið. „Þetta er þakkarvert því þessir björgunarhringir eru mikilvægt öryggisatriði við fjörur og strendur. Einnig langar mig að vekja athygli á því hversu mikilvægt það er að ganga…Lesa meira

true

Skallagrímur jafnaði metin í hörkuleik

Næstum sjö hundruð áhorfendur voru mættir í Fjósið í Borgarnesi í gærkvöldi á leik Skallagríms og Hamars í úrslitum um sæti í Subway deild karla í körfuknattleik. Hamarsmenn höfðu sigur á fimmtudagskvöldið í fyrsta leik liðanna og því var ljóst fyrir leik að Skallagrímur væri kominn upp við vegg ef ekki næðist sigur á heimavelli.…Lesa meira

true

Sex verkefni á Vesturlandi fá framkvæmdastyrki

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tilkynnti um úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða síðastliðinn föstudag. Í ár hljóta 28 verkefni á landsvísu styrk fyrir alls 550 milljónir króna. Þar af eru sex verkefni á Vesturlandi sem fá stuðning. „Verkefnin sem hljóta styrki í ár snúa að fjölbreyttri uppbyggingu um land allt. Það er sérstaklega ánægjulegt að…Lesa meira

true

Eftirminnilegt eintal á Sögulofti

Á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi kvað við nýjan tón síðastliðið laugardagskvöld. Þar hefur gjarnan stigið á stokk sagnafólk sem rifjar upp fornsögurnar með áheyrendum eða segir sögur af fólki. Nýjasta sagnakona Landnámsseturs flytur hinsvegar frumsamda sögu; skáldverk sem komið hefur út á bók en birtist nú áheyrendum í nýjum búningi. Skáldsagan Guð leitar að Salome…Lesa meira

true

Veiðikortið nú aðgengilegt í símann

Vatnaveiðin er nú að komast á fullt og veiði hefur þegar hafist á nokkrum vatnasvæðum sem hægt er að stunda með því að vera með áskrift að Veiðikortinu. Sem fyrr er hægt að kaupa Veiðikortið sem plastkort upp á gamla mátann en bætt hefur verið við þeim möguleika að hafa kortið rafrænt í símanum. Þó…Lesa meira

true

Þurfa að bæta fjórfalt fleiri krókum við á steinbítsveiðunum

Línu- og dragnótarbátar hafa notað hrygningarstoppið til þess að veiða steinbít, á meðan þorskurinn er á fæðingadeildinni. Ákveðin svæði út af Vestfjörðum og Látrabjargi eru opin fyrir steinbítsveiði. Bátar frá Snæfellsnesi hafa að undanförnu fiskað vel af steinbít eins og beitningarvélarbáturinn Lilja SH frá Rifi. Einnig hefur Sverri SH og Kristinn HU gert góða hluti…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi á morgun

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhússplanið Stillholti 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 18. apríl, frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira

true

Annað riðutilfelli í Miðfirði

Allt fé frá bænum Bergsstöðum, þar sem riða greindist í síðustu viku, hefur nú verið skorið niður. Samtímis niðurskurðinum voru kindur af nokkrum öðrum bæjum sem keyptar höfðu verið frá Bergsstöðum aflífaðar og sýni tekin úr þeim. Við rannsókn á sýnunum reyndist ein þeirra vera jákvæð. Hún var frá bænum Syðri-Urriðaá sem er nágrannabær Bergsstaða.…Lesa meira

true

Íbúum fjölgar í flestum sveitarfélögum

Á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. apríl 2023 fjölgaði íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi mest á landsvísu, eða um 5,4%. Sú aukning byggir á að íbúum fjölgaði um sex einstaklinga á tímabilinu og eru nú 118. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Skorradalshreppi, eða um 5,2% en þar fjölgaði íbúum um…Lesa meira

true

„Tölum meira um geðheilsu!“ – Hugrún geðfræðslufélag fer af stað með nýtt átak

Hugrún geðfræðslufélag hefur farið af stað með nýtt átak sem ber yfirskriftina „Tölum meira um geðheilsu!“. Um er að ræða þrjú stutt myndbönd sem eru ætluð til þess að vekja fólk til umhugsunar um geðheilsu. Myndböndin voru birt sunnudaginn 9. apríl á samfélagsmiðlum félagsins (@gedfraedsla á Instagram og Hugrún – geðfræðslufélag á Facebook). Í hverju…Lesa meira