Fréttir

true

Píslarganga um Ólafsvík

Kaþólikkar á Snæfellsnesi voru á göngu um Ólafsvík í síðustu viku. Pólskur prestur sem hefur aðsetur í Stykkishólmi leiddi gönguna með stóran kross á öxl. Með göngunni er minnt á krossfestingu Jesús og píslargöngu frelsarans. Á gönguleiðinni var stoppað á nokkrum stöðum til þess að fara með bænir. Að sögn kaþólskrar nunnu sem fréttaritari ræddi…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík vann ÍH í Lengjubikarnum

ÍH og Víkingur Ólafsvík áttust við í riðli 1 í B deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn í knattspyrnuhöllinni Skessunni í Hafnarfirði. Ein deild er á milli liðanna á Íslandsmótinu, Víkingur leikur í annarri deild í sumar en ÍH í þeirri þriðju. Guðbjörn Smári Birgisson kom Víkingi yfir á tíundu mínútu…Lesa meira

true

Snæfell tapaði með minnsta mun fyrir deildarmeisturunum

Stjarnan og Snæfell mættust í síðustu umferð 1. deildar kvenna í körfuknattleik á þessu tímabili á laugardaginn og fór leikurinn fram í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ. Fyrir leik var ljóst að Stjarnan var deildarmeistari og að Snæfell myndi enda í þriðja sæti þannig að það var lítið undir í leiknum, nema stoltið. Leikurinn fór rólega af…Lesa meira

true

Hægt að bæta við spilurum í kvöld

Nú er fyrsta kvöldi lokið í þriggja kvölda vortvímenningi hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar. Fyrirkomulag keppninnar er þannig að bestu tvö keppniskvöldin af þremur gilda til úrslita. Því er ekkert því til fyrirstöðu að fleiri pör mæti til leiks í kvöld, en spilamennskan hefst stundvíslega klukkan 20. Síðastliðinn mánudag voru þau Ingimundur Jónsson og Anna Heiða Baldursdóttir…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Sigrún Sjöfn Ámundadóttir

Í Skinkuhorninu þessa vikuna er Borgnesingurinn Sigrún Sjöfn Ámundadóttir sem varð á dögunum leikjahæst í efstu deild kvenna í körfubolta á Íslandi frá upphafi. Metið sló hún í leik með Haukum á móti Keflavík í 24. umferð Subway deildar kvenna og var það 376. leikur hennar í efstu deild en fyrra leikjamet átti Birna Valgarðsdóttir…Lesa meira

true

Bárður kominn á Stapann

Það hefur lengi verið draumur Péturs Péturssonar útgerðarmanns á Bárði SH að komast á Arnarstapa með nýja bátinn, Bárð SH-81. Síðastliðið laugardagskvöld varð það að veruleika þegar bátnum var í fyrsta sinn siglt inn í höfnina. Um leið er Bárður stærsti bátur sem hefur komið inn í höfnina á Arnarstapa. Á sunnudaginn var svo landað…Lesa meira

true

Kynheilbrigðisvika og Sólardagar í FSN – myndasyrpa

Það var mikið um að vera í liðinni viku í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Þá voru hinir árlegu Sólardagar á dagskrá þar sem hefðbundið skólastarf var brotið upp. Svo var einnig kynheilbrigðisvika þar sem nemendur unnu verkefni tengt kynheilbrigði fyrir hádegi og óhefðbundið skólastarf var eftir hádegi. Boðið var upp á jóga, póker, frisbiegolf, hestamennsku,…Lesa meira

true

Endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur framlengt rétt þeirra sem nýta sér þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara til endurgreiðslu kostnaðar frá sjúkratryggingum, til 1. maí. „Almennt er forsenda fyrir endurgreiðslu að fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni eða heilsugæslustöð þar sem sjúkdómsgreining kemur fram. Með reglugerðarbreytingu ráðherra er veitt heimild til að víkja frá þessu skilyrði vegna…Lesa meira

true

Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi 2023 verður í Tónbergi

Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskóla Akraneskaupstaðar verður haldin í Tónbergi fimmtudaginn 23. mars og hefst klukkan 19.30. Við athöfnina munu tólf nemendur í 7. bekk sem valdir hafa verið úr Brekkubæjarskóla og Grundaskóla lesa sögur og ljóð en Julia Von Káradóttir mun lesa pólskan texta. Dómnefnd mun síðan velja bestu upplesara beggja skóla. Þá verða flutt tónlistaratriði…Lesa meira