
Nemendur fóru í hesthúsin hjá Lárusi Ástmari Hannessyni og kynntust hestamennsku. Ljósmyndir: TFK
Kynheilbrigðisvika og Sólardagar í FSN – myndasyrpa
Það var mikið um að vera í liðinni viku í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Þá voru hinir árlegu Sólardagar á dagskrá þar sem hefðbundið skólastarf var brotið upp. Svo var einnig kynheilbrigðisvika þar sem nemendur unnu verkefni tengt kynheilbrigði fyrir hádegi og óhefðbundið skólastarf var eftir hádegi. Boðið var upp á jóga, póker, frisbiegolf, hestamennsku, klifur og margt fleira þessa daga. Á fimmtudeginum var svokallaður „fansí fimmtudagur“ þar sem kennarar og nemendur mættu prúðbúnari en venjulega ásamt því að nemendur kynntu svo verkefni sín í kynheilbrigði og um kvöldið var á árshátíð nemendafélagsins.