
Skinkuhorn – Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
Í Skinkuhorninu þessa vikuna er Borgnesingurinn Sigrún Sjöfn Ámundadóttir sem varð á dögunum leikjahæst í efstu deild kvenna í körfubolta á Íslandi frá upphafi. Metið sló hún í leik með Haukum á móti Keflavík í 24. umferð Subway deildar kvenna og var það 376. leikur hennar í efstu deild en fyrra leikjamet átti Birna Valgarðsdóttir með 375 leiki. Sigrún fór úr Fjölni yfir í Hauka á miðju tímabili nú í janúar og mun hún leika með liðinu út yfirstandandi tímabil, sem hún gerir jafnframt ráð fyrir að sé sitt síðasta tímabil. Nú sé hún tilbúin að hvíla íþróttina og setja önnur atriði í fyrsta sæti, þar sem körfuboltinn hefur verið síðustu 20 ár. Hún útilokar þó ekki að fara seinna að þjálfa enda sé körfubolti hennar ástríða.