Fréttir

true

Nefndin setur ofan í við byggðarráð

Á fundi atvinnu,- markaðs- og menningarmálanefndar Borgarbyggðar fyrr í vikunni var lagt fram til kynningar staða Grímshúss, en byggðarráð ákvað fyrr í vetur að auglýsa eftir umsóknum um notkun á húsinu. Alls bárust sex mjög ólíkar umsóknir sem farið var yfir á fundi byggðarráðs, sem fól sveitarstjóra að vinna minnisblað þar sem hugmyndum er listað…Lesa meira

true

Verktakafyrirtækið Þróttur flytur starfsemina í græna iðngarða

Akraneskaupstaður og Þróttur ehf. hafa undirritað samning um lóðir í grænum iðngörðum í Flóahverfi á Akranesi. Með samningnum tryggir Þróttur ehf. sér aðgang að tveimur lóðum sem eru samtals yfir 9.800 fermetrar að stærð sem gerir fyrirtækinu mögulegt að flytja og stuðla að frekari uppbyggingu í stækkandi starfsemi. Fyrirtækið er nú staðsett við Ægisbraut 2…Lesa meira

true

Glæsileg sýning nemenda Menntaskóla Borgarfjarðar – Myndasyrpa

Nú í vikunni var hefðbundið nám lagt til hliðar í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þá var svokölluð Lífsnámsvika, en lífsnámið samanstendur af fimm nýjum námsáföngum. Þeir eru afrakstur tveggja ára þróunarstarfs og snúast um það sem skiptir mestu máli í lífinu að mati nemenda; geðheilbrigði, fjármál, kynlíf, umhverfismál, jafnrétti og mannréttindi. Viðfangsefni vikunnar var sjálfbærni…Lesa meira

true

Bændur skulu reka fé á afrétt ef heimalönd eru ekki afgirt

Ný staða er komin upp sem bæði sauðfjárbændur og sveitarfélög í landinu þurfa að bregðast við. Bændur sjá nú fram á nýjan kostnaðarlið í rekstrinum eftir að umboðsmaður Alþingis og dómsmálaráðuneytið túlkuðu lög með þeim hætti að sveitarfélögum beri að smala ágangsfé til síns heima á kostnað fjáreigenda. Nú geta þeir landeigendur sem vilja losna…Lesa meira

true

Ísland og önnur Norðurlönd stilla saman strengi á ITB Berlín

Kynning á íslenskri ferðaþjónustu er nú í fullum gangi. Búist er við að á þessu ári verði slegið met í fjölda erlendra ferðamanna hér á landi þegar á þriðja milljón gesta heimsækja landið. Nú síðast bárust fréttir af því að Kína mun að nýju bætast í hóp þeirra þjóða sem hingað koma, en Kínverjar hafa…Lesa meira

true

Sveitarfélagaskólinn heim í hérað

Sveitarfélagaskólinn er stafrænn vettvangur námskeiða fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga. Skólanum var hleypt af stokkunum eftir sveitarstjórnarkosningar 2022. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur nú hannað vinnustofur fyrir kjörna fulltrúa með það að markmiði að sveitarstjórnarfólk fái aukna þekkingu og færni til að efla sig í árangursríkum samskiptum við úrlausn ágreiningsefna auk þess að reyna með…Lesa meira

true

Eyjólfur Vilberg er nýr framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA

Eyjólfur Vilberg Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA (KFÍA) og tekur hann við starfinu af Geir Þorsteinssyni. Eyjólfur hefur fjölbreytta reynslu á sviði stjórnunar, fjármála, reksturs og félagsmála en hann hefur komið að knattspyrnuþjálfun yngri flokka og hefur verið að sækja réttindi sem þjálfari. Fram kemur á FB síðu KFÍA að Eyjólfur þekkir vel…Lesa meira

true

Efla íslenska löggæslu – 80 ný stöðugildi

Á upplýsingafundi dómsmálaráðherra í gær var kynnt nýtt fjórþætt aðgerðaplan í löggæslumálum. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að undirbúningur að því plani hafi staðið í tólf mánuði og farið hafi verið í þá vinnu þar sem þróun löggæslumála undanfarin ár hafi ekki verið í takt við almenna þróun í íslensku samfélagi. „Landsmönnum hefur fjölgað…Lesa meira

true

Hóllinn við Grundaskóla víkur fyrir viðbyggingu

Stórvirkar vinnuvélar hafa undanfarna daga mokað niður stóra hólnum sem staðsettur var við Grundaskóla á Akranesi. Efnið er flutt á brott. Fram kemur í frétt á vef Grundaskóla að hóllinn hafi í gegnum tíðina verið eitt af einkennismerkjum á skólalóðinni og fjölmargir hafi leikið sér á eða með börnum sínum í gegnum árin. Hóllinn víkur…Lesa meira

true

Vel sóttur kynningarfundur um deiliskipulag á Skipavíkursvæði

Opinn kynningarfundur var haldinn á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi í gær vegna deiliskipulags á Skipavíkursvæðinu. Málið á sér nokkra forsögu þar sem Asco Harvester fékk 14. október sl. byggingarleyfi fyrir þangskurðverksmiðju á Skipavíkursvæðinu, nánar tiltekið við Nesveg 22a, án þess að svæðið hafi verið deiliskipulagt. Felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála byggingarleyfið úr gildi 28. október þar…Lesa meira