
Frá upplýsingafundi dómsmálaráðherra í gær. Ljósm. Stjórnarráðið.
Efla íslenska löggæslu – 80 ný stöðugildi
Á upplýsingafundi dómsmálaráðherra í gær var kynnt nýtt fjórþætt aðgerðaplan í löggæslumálum. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að undirbúningur að því plani hafi staðið í tólf mánuði og farið hafi verið í þá vinnu þar sem þróun löggæslumála undanfarin ár hafi ekki verið í takt við almenna þróun í íslensku samfélagi.