Eftir undirritun samnings um lóðirnar í Flóahverfi. Frá vinstri: Fannar Freyr Helgason verkefnastjóri, Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Helgi Þorsteinsson framkvæmdarstjóri og Valdís Eyjólfsdóttir verkefnastjóri. Ljósm. akranes.is

Verktakafyrirtækið Þróttur flytur starfsemina í græna iðngarða

Akraneskaupstaður og Þróttur ehf. hafa undirritað samning um lóðir í grænum iðngörðum í Flóahverfi á Akranesi. Með samningnum tryggir Þróttur ehf. sér aðgang að tveimur lóðum sem eru samtals yfir 9.800 fermetrar að stærð sem gerir fyrirtækinu mögulegt að flytja og stuðla að frekari uppbyggingu í stækkandi starfsemi. Fyrirtækið er nú staðsett við Ægisbraut 2 og 4 en Akraneskaupstaður tekur þær lóðir yfir fyrir væntanleg skólamannvirki í framtíðinni.

Verktakafyrirtækið Þróttur flytur starfsemina í græna iðngarða - Skessuhorn