
Vel sóttur kynningarfundur. Ljósm. sá
Vel sóttur kynningarfundur um deiliskipulag á Skipavíkursvæði
Opinn kynningarfundur var haldinn á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi í gær vegna deiliskipulags á Skipavíkursvæðinu. Málið á sér nokkra forsögu þar sem Asco Harvester fékk 14. október sl. byggingarleyfi fyrir þangskurðverksmiðju á Skipavíkursvæðinu, nánar tiltekið við Nesveg 22a, án þess að svæðið hafi verið deiliskipulagt. Felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála byggingarleyfið úr gildi 28. október þar sem hún taldi umrædda byggingu ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag og að deiliskipuleggja hefði þurft svæðið áður. Sú vinna er nú í gangi.