Fé rekið af afrétti á Arnarvatnsheiði. Ljósm. mm

Bændur skulu reka fé á afrétt ef heimalönd eru ekki afgirt

Ný staða er komin upp sem bæði sauðfjárbændur og sveitarfélög í landinu þurfa að bregðast við. Bændur sjá nú fram á nýjan kostnaðarlið í rekstrinum eftir að umboðsmaður Alþingis og dómsmálaráðuneytið túlkuðu lög með þeim hætti að sveitarfélögum beri að smala ágangsfé til síns heima á kostnað fjáreigenda. Nú geta þeir landeigendur sem vilja losna við ágangsfé af jörðum sínum krafist þess að sveitarfélög láti smala fénu á kostnað bænda. Slík heimild hefur reyndar verið lengi til staðar í lögum en hefur nú verið virkjuð eftir að umboðsmaður Alþingis og dómsmálaráðuneytið höfnuðu lagatúlkun og leiðbeiningum sem innviðaráðuneytið hefur stuðst við. Sú túlkun hefur verið á þá lund að ef landeigendur hafa viljað friða lönd sín frá ágangi búfjár, beri þeim að girða sín lönd af.

Bændur skulu reka fé á afrétt ef heimalönd eru ekki afgirt - Skessuhorn