Fréttir

true

Fjórða tunnan á leiðinni í Hvalfjarðarsveit

Eins og fram hefur komið í kynningar- og fréttatengdu efni frá Hvalfjarðarsveit, verður innleitt svokallað fjögurra tunnu kerfi í sveitarfélaginu á þessu ári. Ný lög tóku gildi 1. janúar sl. og eru þau grunnurinn að þessum breytingum. Samhliða næstu losun á svokallaðri grænu tunnu (endurvinnslutunnunni sem nú er í notkun), verður nýrri 240 lítra tunnu…Lesa meira

true

Fóru að sjá Töfraflautuna í Hörpu

Í síðustu viku fóru nemendur þriðja og fjórða bekkjar í Brekkubæjarskóla á Akranesi í menningarferð. Stefnan var sett í Hörpu þar sem krakkarnir sáu Töfraflautuna eftir Mozart. Hún er flutt í klukkustundarlangri útfærslu fyrir sögumann og fimm einsöngvara en með hlutverkin fara íslenskir söngvarar af yngri kynslóðinni. Öll hafa þau stundað framhaldsnám erlendis og hlotið…Lesa meira

true

Umhverfisráðgjöf Íslands stýrir innleiðingu um aukna sorpflokkun á Vesturlandi

Nýverið gengu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og umhverfis,- orku- og loftlagsráðuneytið frá samningi um stuðning ráðuneytisins við verkefnið „Flokkun í anda hringrásarhagkerfisins,“ sem er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands, en ráðuneytið leggur verkefninu til tíu milljónir króna. Tilgangurinn með verkefninu er að draga verulega úr því magni úrgangs sem fer til förgunar á Vesturlandi og bæta þar…Lesa meira

true

Keypti körfuboltatreyju á fjögur hundruð þúsund krónur

Körfuboltadeild Skallagríms efndi til þorrablóts í Borgarnesi laugardaginn 11. febrúar síðastliðinn. Á blótinu fór fram fjáröflun m.a. í formi uppboðs á treyjum fyrrum leikmanna Skallagríms. Treyja körfuboltakonunnar Keira Robinson nr. 34 seldist þar á hæsta verði, en Keira er bandarísk og spilaði með meistaraflokki Skallagríms veturinn sem liðið hreppti bikarinn 15. febrúar 2020 eftir frækilegan…Lesa meira

true

Olían búin hjá Olís Esjubraut

Verkfall olíuflutningabílstjóra hjá Eflingu er einhver áhrif farin að hafa á Vesturlandi. Þannig er nú enga dísel olíu að fá hjá Olís við Esjubraut á Akranesi og á síðu fyrirtækisins kemur fram að lítið sé eftir af litaðri olíu þar. Á öðrum bensínstöðvum í bæjarfélaginu er eldsneyti að fá. Verkfallið hefur ekki áhrif alls staðar…Lesa meira

true

Dótaríi verður lokað eftir helgi

Í kjölfar andláts Tinnu Ósk Grímarsdóttur, kaupmanns í versluninni Dótarí við Smiðjuvelli 32 á Akranesi, hefur fjölskylda hennar tekið þá ákvörðun að loka versluninni. Í nýrri FB færslu hvetur fjölskylda Tinnu þá sem vilja leggja fjölskyldunni lið á erfiðum tímum að kaupa afmælis-, tækifæris- eða jólagjafir í búðinni á næstu dögum og gera um leið…Lesa meira

true

Grímsstaðaket hefur opnað matarsmiðju

Nýverið gerði Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi samning við Grímsstaðaket ehf. um stuðning við rekstur matarsmiðju á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Á heimasíðu samtakanna kemur fram að samningurinn feli í sér að Grímsstaðaket tekur yfir hluta af þeim búnaði sem var í matarsmiðjunni á Sólbakka í Borgarnesi og var í eigu SSV. Það húsnæði hefur nú farið…Lesa meira

true

Stórbruni á Tálknafirði

Á tíunda tímanum í morgun var allt tiltækt slökkvilið á Patreksfirði og Tálknafirði kallað út. Mikill eldur er í 5000 fm. nýbyggingu Arctic Fish í Norður-Botni, innst í Tálknafirði. Eldurinn kom upp í húsi sem er í byggingu sem átti að hýsa þriðju seiðaeldisstöð fyrirtækisins. Húsið stendur milli tveggja annarra húsa og beinist krafturinn í…Lesa meira

true

Hugmyndum varpað fram um ný heildarsamtök í landbúnaði

Við upphaf Búgreinaþings, sem nú fer fram á Hótel Natura í Reykjavík, voru kynntar hugmyndir um ný heildarsamtök í landbúnaði sem yrðu byggð sameiginlega á Bændasamtökum Íslands og Samtökum fyrirtækja í landbúnaði. Fréttavefurinn bbl.is greinir frá því að það hafi verið Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi alþingismaður og landbúnaðarráðherra, sem hafi farið yfir niðurstöður vinnu hans…Lesa meira

true

Jón Theodór hlaut viðurkenningu frá KSÍ

Hvanneyringurinn Jón Theodór Jónsson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeldar Skallagríms í Borgarnesi, hlaut í gær viðurkenningu frá Knattspyrnusambandi Íslands sem Grasrótarpersóna ársins. Í frétt KSÍ segir að Jón Theodór hafi hlotið titilinn fyrir ómetanlegst starf sem hann hefur unnið hjá Skallagrími. Í tilnefningunni segir: ,,Jón Theodór sýnir mikla ástríðu fyrir þjálfun yngri flokka og hefur rifið upp knattspyrnustarfið…Lesa meira