Dótaríi verður lokað eftir helgi

Í kjölfar andláts Tinnu Ósk Grímarsdóttur, kaupmanns í versluninni Dótarí við Smiðjuvelli 32 á Akranesi, hefur fjölskylda hennar tekið þá ákvörðun að loka versluninni. Í nýrri FB færslu hvetur fjölskylda Tinnu þá sem vilja leggja fjölskyldunni lið á erfiðum tímum að kaupa afmælis-, tækifæris- eða jólagjafir í búðinni á næstu dögum og gera um leið kjarakaup. 25% afsláttur er á öllum vörum í búðinni sem lokað verður strax eftir helgi.

Dótaríi verður lokað eftir helgi - Skessuhorn