
Jóhanna Sjöfn hellir hér pækli yfir væntanlegt saltkjöt.
Grímsstaðaket hefur opnað matarsmiðju
Nýverið gerði Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi samning við Grímsstaðaket ehf. um stuðning við rekstur matarsmiðju á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Á heimasíðu samtakanna kemur fram að samningurinn feli í sér að Grímsstaðaket tekur yfir hluta af þeim búnaði sem var í matarsmiðjunni á Sólbakka í Borgarnesi og var í eigu SSV. Það húsnæði hefur nú farið undir starfsemi Öldunnar. Á móti mun SSV fá aðstöðu í matarsmiðjunni á Grímsstöðum undir námskeiðahald og fleira.