Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra umhverfis- og loftslagsmála ávarpar Búgreinaþing. Ljósm. bbl.is

Hugmyndum varpað fram um ný heildarsamtök í landbúnaði

Við upphaf Búgreinaþings, sem nú fer fram á Hótel Natura í Reykjavík, voru kynntar hugmyndir um ný heildarsamtök í landbúnaði sem yrðu byggð sameiginlega á Bændasamtökum Íslands og Samtökum fyrirtækja í landbúnaði. Fréttavefurinn bbl.is greinir frá því að það hafi verið Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi alþingismaður og landbúnaðarráðherra, sem hafi farið yfir niðurstöður vinnu hans og Sigurgeirs Þorgeirssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra BÍ og ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, um möguleg ný landbúnaðarsamtök sem yrðu byggð á fyrirmynd dönsku heildarsamtakanna Landbrug & fødevarer frá árunum 2009–2022. Þá voru dönsku samtökin sett saman af tveimur stoðum; bændahlið og fyrirtækjahlið.

Hugmyndum varpað fram um ný heildarsamtök í landbúnaði - Skessuhorn