Fréttir

true

Ráðherra heimsótti Erró á vinnustofu sína

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, heimsótti Erró á vinnustofu listamannsins í París í síðustu viku. Heimsóknin var hluti af ferð ráðherrans til Frakklands þar sem hún fundaði með fulltrúum alþjóðastofnana á sviði menningar, viðskipta og ferðaþjónustu. Erró tók á móti ráðherra á vinnustofu sinni, sýndi ný og eldri verk og sagði frá nýjustu sýningum…Lesa meira

true

Stífla í Norðurá

Samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar hefur nú myndast stífla í Norðurá við Brekku í Norðurárdal en stíflan gæti orsakað flóð í ánni. Ár víða um land eru að hluta eða öllu leyti ísi lagðar eftir frosthörkur undanfarna mánuði, en mikil rigning og leysingar um liðna helgi auka möguleiki á staðbundnum flóðum. ,,Veðurstofan fylgist vel með breytingum næstu…Lesa meira

true

Éljagangur í dag og enn verra veður í fyrramálið

Síðdegis og í kvöld ganga suðvestanlands yfir þétt og dimm él. Á Hellisheiði og í Þrengslum sem og á Mosfellsheiði verður skafrenningskóf og blint með köflum. Sama á við um Holtavörðuheiði og Bröttubrekku, segir í viðvörun Vegagerðarinnar. Í fyrramálið gengur svo enn ein lægðin yfir landið og eru meira eða minna appelsínugular viðvaranir í gildi…Lesa meira

true

Aukið svigrúm við endurgreiðslur stuðningslána

Lánastofnunum verður heimilt að hliðra endurgreiðslutíma stuðningslána í allt að sex mánuði til viðbótar við þann frest sem áður var gefinn. Lánastofnunum verður einnig heimilt að lengja endurgreiðslutíma stuðningslána með fullri ábyrgð ríkissjóðs úr tólf mánuðum í allt að átján mánuði. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð fjármála- og efnahagsráðherra. Stuðningslán voru veitt til að aðstoða…Lesa meira

true

Fræðsluátak um kynheilbrigði í FVA

Í þessari viku standa Nemendafélagið NFFA, jafnréttisfulltrúi og stoðteymi Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) fyrir átaki um kynheilbrigði. Dagskráin er ríkuleg og fjölbreytt og má sem dæmi nefna fyrirlestra um ýmsa þætti kynheilbrigðis auk fræðslumyndbanda sem sýnd verða á tjaldi. Páll Óskar Hjálmtýsson mætir á morgun þriðjudaginn 7. febrúar, spjallar við nemendur og tekur nokkur…Lesa meira

true

Héldu þorragleði í heita pottinum

Pottormar, sem hittast reglulega í heita pottinum í sundlauginni á Jaðarsbökkum á Akranesi, héldu á föstudaginn sitt árlega þorrablót. Komu þar saman á sjöunda tímanum og snæddu dögurð. Eins og sést fór vel á með mannskapnum og maturinn hefur sjaldnast smakkast betur, en hann var allur úr Einarsbúð. Það var Helga Ólöf Oliversdóttir sem tók…Lesa meira

true

Keilufólk á RIG og öldungamóti

Reykjavíkurleikarnir, RIG, kláruðust 2. febrúar síðastliðinn og átti ÍA nokkra keppendur þar í keilu. Helgina 21. og 22. janúar var spilað Early Bird sem er einskonar forkeppni á RIG og þar gerði Matthías Leó Sigurðsson sér lítið fyrir og setti fimm Íslandsmet í flokki U16. Hann setti met í 2, 3, 4, 5 og 6…Lesa meira

true

Íslenska arnarstofninum stafar ógn af skyldleikaæxlun

Íslenski arnarstofninn einkennist af skyldleikaæxlun og er erfðafræðilega einsleitur. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í glænýrri vísindagrein hóps evrópskra fræðimanna, sem birtist í vísindaritinu Molecular Ecology og skrifað er um á vef Náttúrustofu Vesturlands. Verkefnið var unnið undir stjórn sérfræðinga við Háskóla Íslands en sérfræðingar á Náttúrustofu Vesturlands, Náttúrufræðistofnun Íslands og deCODE…Lesa meira

true

„Þú þarft einhvern sem getur sagt þér til og þannig náð árangri“

Rætt við Hjördísi Eyþórsdóttur sem í þrjá áratugi hefur haft bridds að atvinnu Hjördís Eyþórsdóttir er sá Íslendingur sem náð hefur lengst í briddsíþróttinni. Hún hefur nú í nær þrjá áratugi starfað í Ameríku sem atvinnumanneskja í bridds og hefur lifibrauð sitt af því að kenna öðrum íþróttina og keppa við þá á mótum hvort…Lesa meira

true

Þriðjudagslægðin gæti orðið snörp

Þessa dagana gengur hver lægðin af fætur annarri yfir landið í veðrakerfi sem einkennt hefur hinar norðlægu slóðir undanfarna daga. Í dag er sunnan 15-28 m/s og hvassast norðan- og norðvestantil. Gular og appelsínugular viðvaranir eru víðast hvar vegna úrkomu og hvassviðris, en þó er Faxaflóasvæðið með skaplegasta veðrið í dag. Á þriðjudaginn er síðan…Lesa meira