Fréttir

true

Talsvert um hraðakstur í skammdeginu

Á fimmtudaginn var lögregla við almennt umferðareftirlit á Snæfellsnesvegi skammt sunnan við Laufás og mættu bíl sem var á 148 kílómetra hraða. Stöðvuðu þeir för ökumanns sem játaði brot sitt og á von á að vera sviptur ökuréttindum og hárri sekt. Sama dag að kvöldi til var erlendur ferðamaður tekinn fyrir of hraðan akstur í…Lesa meira

true

Rithöfundakvöld á Græna kompaníinu slá í gegn

Þær Lilja Magnúsdóttir og Signý Gunnarsdóttir eiga og reka gistiheimilið og kaffihúsið Græna kompaníið í Grundarfirði. Græna kompaníið er lítið og notalegt kaffihús, bókabúð og hannyrðaverslun á neðri hæðinni en á efri hæðinni eru svo gistirými til útleigu. Þær Lilja og Signý voru búnar að ganga með þá hugmynd í maganum að fá rithöfunda til…Lesa meira

true

Bílabæ lokað í Borgarnesi

Í tilkynningu frá bifreiðaverkstæðinu Bílabæ við Brákarbraut 5 í Borgarnesi kemur fram að frá og með þessum mánaðamótum verði verkstæðinu lokað að minnsta kosti um tíma. Eingöngu verði um þjónustu dráttarbíls og bifreiðaflutninga að ræða og þakkar Hálfdán Þórisson eigandi Bílabæjar viðskiptavinum sínum traustið undangengin 16 ár. Skessuhorn heyrði í Hálfdáni og segir hann að…Lesa meira

true

Foreldrasími Heimilis og skóla

Heimili og skóli, landssamtök foreldra, hafa aukið við þjónustu sína og eru farin að bjóða upp á Foreldrasíma Heimilis og skóla. Foreldrasíminn er hugsaður fyrir foreldra og fagfólk til að fá ráðgjöf og stuðning. Í Foreldrasímanum eru veittar upplýsingar um hvert skal leita með mál og ráðgjöf veitt eftir atvikum til að styðja við og…Lesa meira

true

„Þú þarft einhvern sem getur sagt þér til og þannig náð árangri“

Rætt við Hjördísi Eyþórsdóttur sem í þrjá áratugi hefur haft bridds að atvinnu Hjördís Eyþórsdóttir er sá Íslendingur sem náð hefur lengst í briddsíþróttinni. Hún hefur nú í nær þrjá áratugi starfað í Ameríku sem atvinnumanneskja í bridds og hefur lifibrauð sitt af því að kenna öðrum íþróttina og keppa við þá á mótum hvort…Lesa meira

true

Vilja að Vesturgata 62 og Suðurgata 57 verði seld

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðasta föstudag lýsti bæjarráð þeim vilja að húsið Vesturgata 62, gamla íþróttahúsið, verði selt á almennum markaði en með tilteknum kvöðum sem meðal annars varða tímalínu endurbóta, rif á viðbyggingu og hugmynda um fyrirhuguða notkun á húsinu. Afla þarf heimildar frá framkvæmdasýslu ríkisins vegna þessa en stofnunin fer með eignarhluta ríkisins…Lesa meira

true

ÍA tapaði fyrir KR í Krakkakvissi

Önnur viðureignin í átta liða úrslitum Krakkakviss var sýnd á Stöð 2 síðasta föstudagskvöld. Þar áttust við gömlu erkifjendurnir ÍA og KR og óhætt að segja að um spennandi viðureign hafi verið að ræða. Lið ÍA var skipað þeim Ólöfu Oddnýju Jansen og Pétri Steini Gunnarssyni sem eru í Grundaskóla og Aðalheiði Ísold Pálmadóttur úr…Lesa meira

true

Samið til tveggja ára um snjómokstur

Í liðinni viku var undirritaður samningu Hvalfjarðarsveitar og Vegagerðarinnar um snjómokstur í sveitarfélaginu. Samið var til tveggja ára við Miðfellsbúið ehf. um að sjá um snjómokstur og hálkueyðingu í sveitarfélaginu fyrir tímabilið janúar 2023 til janúar 2025. Meðfylgjandi mynd af undirritun samningsins er fengin af vef Hvalfjarðarsveitar, en á henni eru f.v. Sigurður Þór Runólfsson…Lesa meira

true

Bílvelta á Faxabraut

Skömmu eftir hádegi í dag valt jeppabifreið á Faxabraut á Akranesi og hafnaði utan vegar. Ökumaður var einn í bílnum og var hann færður með sjúkrabíl undir læknishendur. Samkvæmt heimildum Skessuhorns hafði hann verið í öryggisbeltum og er ekki alvarlega slasaður. Bíllinn, sem er gamall jeppi, er hins vegar illa farinn og líklega ónýtur.Lesa meira

true

Velja samfélagsþjónustu fremur en að greiða dómsektir

Um miðjan janúar síðastliðinn gaf Ríkisendurskoðun út skýrslu um stöðu innheimtu dómsekta. Slík úttekt var síðast framkvæmd árið 2009. Nú kemur í ljós að nær engin breyting hefur orðið á innheimtu dómsekta síðan þá. ,,Álagðar dómsektir sem námu 10 milljónum króna eða meira á tímabilinu 2014-18 voru að heildarfjárhæð 5,7 milljarðar króna. Af þeim höfðu…Lesa meira