Fréttir

true

Þorrablót leikskólans í Stykkishólmi

Á heimasíðu Stykkishólmsbæjar kemur fram að hefð sé fyrir því að halda upp á bóndadaginn í leikskóla bæjarins með þorrablóti og í honum starfi fólk með ýmsa hæfileika og kunnáttu. Á bóndadaginn komu þær Anna og Karín Rut með ýmislegt skemmtilegt til að sýna krökkunum á deildunum Ási og Nesi í tilefni dagsins. Börnin fengu…Lesa meira

true

Fimm skip halda til loðnumælinga í dag

Í dag halda fimm skip út til mælinga á stærð loðnustofnsins við Ísland. Til viðbótar við Bjarna Sæmundsson og Árna Friðriksson, rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, verða það loðnuskipin Heimaey frá Vestmannaeyjum, Jóna Eðvaldsdóttir og Ásgrímur Halldórsson frá Hornafirði. Útgerðir uppsjávarveiðiskipa standa sameiginlega undir kostnaðinum við úthald loðnuskipanna. Vísindamenn frá stofnuninni verða um borð í hverju skipi. Gert…Lesa meira

true

Fimmta tap Skagamanna í röð

Hrunamenn og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik síðasta föstudagskvöld og var viðureignin á Flúðum. Fyrir leikinn voru Skagamenn með 10 stig og Hrunamenn með 12 stig og gat ÍA því með sigri jafnað þá að stigum í deildinni. Fyrsti leikhluti var jafn og spennandi allan tímann, liðin skiptust á að ná forystu…Lesa meira

true

Ninja lauk keppni í Idolinu

Annar þáttur útsláttarkeppni Idolsins fór fram í beinni útsendingu á Stöð 2 á föstudagskvöldið að loknum svekkjandi tapleik íslenska landsliðsins í handbolta á móti Svíþjóð. Vegna handboltaæðis þjóðarinnar var ákveðið að fresta Idolkeppni kvöldsins svo áhorfendur þyrftu ekki að gera upp á milli HM í handbolta og Idolsins. Fyrir símakosninguna eftir að þáttakendur höfðu spreytt…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði gegn toppliði Álftaness

Skallagrímur og Álftanes áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Það var jafnt á flestum tölum fyrstu mínútur leiksins, staðan var jöfn 10:10 eftir fimm mínútna leik en síðan áttu gestirnir ágætis kafla og leiddu með sex stigum við lok fyrsta leikhluta, 15:21. Álftanes…Lesa meira

true

Samkennd og samhugur einkenndu minningarathöfnina á Patreksfirði

Minningarathöfn var haldin á Patreksfirði í gær um þau sem létust í krapaflóðunum á Patreksfirði 22. janúar 1983, en þennan dag voru rétt 40 ár frá því að krapaflóðin féllu á bæinn Patreksfjörð með þeim afleiðingum að fjögur létust og nítján hús skemmdust. Samkennd og samhugur einkenndu daginn þar sem látinna var minnst og þeim…Lesa meira

true

Björgvin ráðinn verkefnisstjóri Sundabrautar

Björgvin Þorsteinsson hefur verið ráðinn til Vegagerðarinnar sem verkefnisstjóri Sundabrautar. Mun hann vinna fyrir verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar sem skipuð var af Sigurði Inga Jóhannssyni, innviðaráðherra, á síðasta ári. Næstu skref undirbúnings Sundabrautar eru vinna við mat á umhverfisáhrifum, frekari útfærsla valkosta, samráð við hagsmunaaðila og undirbúningur nauðsynlegra breytinga á skipulagsáætlunum með það að markmiði…Lesa meira

true

Þrjú sveitarfélög á Vesturlandi innleiða Borgað þegar hent er kerfi

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur farið af stað með innleiðingarverkefni þar sem markmiðið er innleiðing á kerfi innheimtu vegna meðhöndlunar úrgangs sem nefnist „Borgað þegar hent er kerfi“. Verkefnið er leitt af Sambandi íslenskra sveitarfélaga en auk þess eru Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Húsnæðis og mannvirkjastofnun aðilar að því. Þetta kemur fram á heimasíðu Sambands…Lesa meira

true

Tinna Ósk er Skagamaður ársins 2022

Tinna Ósk Grímarsdóttir var í gærkvöldi kjörin Skagamaður ársins 2022. Kjörinu var lýst á Þorrablóti Skagamanna sem fram fór í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Tinna Ósk hefur á undanförnum árum komið miklu í verk og verið öðrum sönn fyrirmynd. Hún er 35 ára fyrirtækiseigandi, grafískur miðlari að mennt, eiginkona og tveggja barna móðir. Hún hefur á…Lesa meira

true

Varðskipið Freyja lagðist að bryggju í Grundarfirði

Nýjasta varðskip Landhelgisgæslu Íslands, Freyja, kom til hafnar í Grundarfirði í gær, laugardag. Þá var öldudufl sett í land sem áhöfnin skipti um hjá Flatey á dögunum. Þetta var í fyrsta skipti sem varðskipið Freyja hefur viðkomu á Snæfellsnesi frá því skipið var tekið í notkun í nóvember 2021. Skipið lét svo úr höfn um…Lesa meira