
Tinna Ósk er Skagamaður ársins 2022
Tinna Ósk Grímarsdóttir var í gærkvöldi kjörin Skagamaður ársins 2022. Kjörinu var lýst á Þorrablóti Skagamanna sem fram fór í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Tinna Ósk hefur á undanförnum árum komið miklu í verk og verið öðrum sönn fyrirmynd. Hún er 35 ára fyrirtækiseigandi, grafískur miðlari að mennt, eiginkona og tveggja barna móðir. Hún hefur á liðnum árum markvisst unnið að því að gera Akranes að betri bæ með óvenjulegri jákvæðni og drift; nýtir öll tækifæri til þess að tala jákvætt um það sem er í boði í bæjarfélaginu sínu. Þá hefur hún sýnt frumkvæði og hvatt íbúa til að taka þátt í viðburðum og nýta þá þjónustu sem er í boði í samfélaginu. Tinna Ósk hefur í hálft annað ár glímt við erfið veikindi, dvelur nú á sjúkrahúsi og tók því sjálf ekki á móti verðlaunum sínum. Það gerðu hins vegar móðir hennar, systir, svilkona, frænkur og aðrir fulltrúar úr stuðningshópnum #Team Tinna.