Fréttir

true

Jól í skókassa til barna í Úkraínu í tuttugasta skipti

Metfjöldi gjafa barst á síðasta ári – 5.575 kassar Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður og gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt…Lesa meira

true

Söngvar og aríur um ástir, örlög og bús

Lilja Guðmundsdóttir sópran, Bjarni Thor Kristinsson bassi og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari koma fram á fyrstu tónleikum haustsins hjá Kalman listafélagi í Vinaminni á Akranesi fimmtudaginn 5. október nk. kl. 20. Yfirskrift tónleikanna er ,,Ástir og drykkja – söngvar og aríur um ástir, örlög og bús“ en þar flytja þau söngdagskrá sem samanstendur af íslenskum…Lesa meira

true

Myndir af bátunum prýða veggi veiðarfærageymslanna

Útgerðir bátanna Egils SH og Guðmundar Jenssonar SH í Ólafsvík hafa látið mála myndir af bátum sínum á gafl veiðarfærageymsla útgerða sinna og vekja þær mikla athygli bæjarbúa jafnt sem ferðamanna, enda verkin skemmtilega útfærð. Myndina af Agli SH gerði Anja Jóhannesdóttir en að sögn Jens Brynjólfssonar útgerðaraðila Egils SH á að vísu eftir að…Lesa meira

true

Nýtt fólk til starfa hjá Norðuráli

Norðurál hefur ráðið nýtt fólk í þrjár stöður hjá fyrirtækinu. Það eru þau Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson framkvæmdastjóri öryggis-, umhverfis- og umbótasviðs, Hólmfríður Kristjánsdóttir lögmaður og Sigríður Harðardóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs.   Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson er framkvæmdastjóri öryggis-, umhverfis- og umbótasviðs hjá Norðuráli. Guðlaugur er menntaður efnaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með MSc gráðu í efnaverkfræði frá…Lesa meira

true

Landsnet boðar til fundar um Holtavörðuheiðarlínu 1

„Nýr valkostur til umhverfismats,“ er yfirskrift fundar sem Landsnet hefur boðað til annað kvöld, þriðjudaginn 3. október klukkan 20 á Hótel Hamri í Borgarnesi. „Við bjóðum til fundar og samtals um nýjan valkost vegna Holtavörðuheiðarlínu 1, sem fengið hefur heitið Hallarmúlaleið. Á fundinum verður kynnt greinargerð um nýjan valkost í umhverfismati verkefnisins, tilurð valkostsins, hvernig…Lesa meira

true

Bókasafn Grundarfjarðar 100 ára

Fimmtudaginn 28. september fagnaði Bókasafn Grundarfjarðar 100 ára afmæli. Af því tilefni var boðið til kaffisamsætis í bókasafninu sem er staðsett í Sögumiðstöðinni. Sunna Njálsdóttir bókasafnsvörður fór yfir sögu safnsins áður en hún bauð gestum að gæða sér á gómsætum veitingum. Glæsileg sýning er í Sögumiðstöðinni en þar má sjá marga forvitnilega og merkilega hluti…Lesa meira

true

Luku tökum á sjónvarpsþáttaseríunni Skaganum

Fyrsti þáttur í sjónvarpsþáttaseríunni Skaganum mun síðar í þessum mánuði verða sýndur í Ríkissjónvarpinu. Lokið var við tökur á Langasandi á laugardaginn og boðið til forsýningar á fyrsta þætti í Bíóhöllinni strax á eftir. Stefán Jónsson, sem heldur úti heimildasíðunni Á sigurslóð um gengi Skagaliðsins í knattspyrnu, segir: „Við höfum verið lánsamir að hafa fengið…Lesa meira

true

Dean ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks ÍA

Dean Martin hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá ÍA með áherslu á styrktarþjálfun og þróun ungra leikmanna. Frá þessu er greint á FB síðu félagsins en fram kemur að Dean hefur mikla reynslu bæði sem þjálfari og leikmaður. Dean hefur spilað 169 leiki fyrir ÍA og skorað 20 mörk en einnig á hann fjölda…Lesa meira

true

Héldu stóra flugslysaæfingu á Húsavík – myndir

Í gær fór fram viðamikil flugslysaæfing á flugvellinum í Aðaldal, skammt frá Húsavík, og rýnifundur allra viðbragðsaðila í kjölfarið. Rétt um hundrað manns tóku þátt í æfingunni. Líkt var eftir því að flugvél með 17 farþega hafi hlekkst á í lendingu og brotlent við brautarenda. Viðbragðsaðilar á svæðinu, starfsfólk heilbrigðisstofnunar og starfsfólk flugvallarins tóku þátt…Lesa meira

true

Styðja ekki eitt útgerðarmynstur umfram annað

Smábátafélagið Snæfell í Snæfellsbæ, sem er aðildarfélag að Landssambandi smábátaeigenda, sendi í síðustu viku opið bréf til bæjarstjórnar Snæfellsbæjar. Í því kallar félagið eftir því að bæjarstjórn lýsi stuðningi við ósk félagsins til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að leggja fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem fæli í sér að…Lesa meira