Héldu stóra flugslysaæfingu á Húsavík – myndir

Í gær fór fram viðamikil flugslysaæfing á flugvellinum í Aðaldal, skammt frá Húsavík, og rýnifundur allra viðbragðsaðila í kjölfarið. Rétt um hundrað manns tóku þátt í æfingunni. Líkt var eftir því að flugvél með 17 farþega hafi hlekkst á í lendingu og brotlent við brautarenda. Viðbragðsaðilar á svæðinu, starfsfólk heilbrigðisstofnunar og starfsfólk flugvallarins tóku þátt í æfingunni.

Héldu stóra flugslysaæfingu á Húsavík - myndir - Skessuhorn