Fréttir

true

Ný skýrsla um viðhorf til atvinnu, vörumerkja og nátturuperlna

Hjá SSV er komin út skýrslan: „Viðhorf til fjarvinnu, vörumerkja, náttúruperla og sögustaða á Vesturlandi“ eftir Bjarka Þór Grönfeldt. Um skýrsluna segir: “Í henni eru tekin saman gögn um viðhorf Íslendinga til fjarvinnu, vörumerkja, náttúruperlna og sögustaða á Vesturlandi. Þessum gögnum var safnað til hliðar við ímyndarkönnun Vesturlands 2023 sem kom út í vor, þar…Lesa meira

true

Stefnt á opnun nýja íþróttahússins vorið 2025

Opnað var fyrir útboð á innanhússfrágangi við nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum á Akranesi í síðustu viku og verða tilboðin opnuð 19. október næstkomandi. Samkvæmt útboðsgögnum á að afhenda kjallararými mannvirkisins 30. janúar árið 2025 og allt húsið í lok maí sama ár. Að sögn Ásbjörns Egilssonar, verkefnastjóra á umhverfis- og skipulagssviði Akraneskaupstaðar, varðandi frágang á…Lesa meira

true

Fyrsta ball haustsins í FVA verður á fimmtudagskvöldið

Fyrsti dansleikur skólaársins í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi verður haldinn í skólanum fimmtudagskvöldið 21. september frá kl. 21 til miðnættis. Til langs tíma voru böllin haldin í Gamla Kaupfélaginu en það húsnæði er úr leik í bili. Stjórn nemendafélags skólans hefur lagt nótt við dag undanfarið við undirbúninginn. Páll Óskar mætir á svæðið ásamt DJ…Lesa meira

true

Límtré Vírnet eykur við vottun fyrirtækisins

Límtré Vírnet ehf. er í dag með vottað stjórnkerfi í samræmi við ISO 9001:2015, jafnlaunavottum samkvæmt ÍST 85 og er með CE vottanir á framleiðslu á límtré og yleiningum. Unnið hefur verið að þessum vottunum með aðkomu fyrirtækisins Versa Vottunar frá árinu 2021. „Þessi vottun tryggir öflugt og faglegt stjórnkerfi yfir allt fyrirtækið og tryggir…Lesa meira

true

Blásið verður til nýsköpunar- og frumkvöðlamóts í næstu viku

Nýsköpunar í vestri er yfirheiti frumkvöðla- og fyrirtækjamóts á Vesturlandi sem fram fer föstudaginn 29. september í Hjálmakletti í Borgarnesi. Dagskráin verður frá klukkan 10-18 og eru áhugasamir hvattir til að taka daginn frá. „Markmið mótsins er að efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á…Lesa meira

true

Lærðu um fiskveiðar og störf sjómanna á árum áður

Síðastliðinn föstudag fór 9. bekkur í Grunnskóla Snæfellsbæjar í heimsókn um borð í bátinn Guðmund Jensson SH til þess að kynnast sjómennsku. Sýndi áhöfnin unga fólkinu bátinn og hvernig sjómenn bera sig að við veiðar. Einnig fengu þau að kynntast tækjum og aðgerðarými um borð. Eftir það var farið á Sjóminjasafnið á Hellissandi þar sem…Lesa meira

true

Kristinn hlýtur náttúruverndar-viðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Á degi íslenskrar tungu síðastliðinn laugardag var tilkynnt um þá ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsnesbæjar hljóti Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti 2023. Er þetta í fjórtánda sinn sem náttúruverndarviðurkenningin er afhent. Afhending viðurkenningarinnar hefur ekki átt sér stað, en mun fara fram á Snæfellsnesi og verður tímasetning kynnt…Lesa meira

true

Mögulega síðasta skemmtiferðaskipið þetta árið

Skemmtiferðaskipið Maud MS frá Hurtigruten kom óvænt til Grundarfjarðarhafnar í nótt. Skipið hafði þá komið degi fyrr frá Grænlandi vegna veðurs og nýtti aukadaginn í Grundarfirði þar sem farþegar fóru í gönguferðir, kayaksiglingar, hjólreiðatúra og þess háttar. Ef veður leyfir þá kemur skipið mögulega aftur næsta miðvikudag, en það á eftir að ráðast samkvæmt upplýsingum…Lesa meira

true

Skora á Samkaup að endurmeta tegund verslunar í Dölum

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti í síðustu viku áskorun til stjórnar og stjórnenda Samkaupa um að taka til endurskoðunar rekstrarform matvöruverslunar í byggðarlaginu. Sú breyting leiddi vorið 2020 til mikillar hækkunar á matvöruverði og við það geta íbúar ekki unað. „Við í Dalabyggð erum að leita allra leiða til að efla samfélagið okkar og innviði til hagsældar…Lesa meira

true

Vilja að stjórnvöld grípi í taumana og setji skýrari reglur um fiskeldi

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt ályktun varðandi göngu eldislaxa í laxveiðiár, en eins og kunnugt er hafa veiðst eldislaxar í ám í sýslunni sem sloppið hafa úr sjókvíum við Vestfirði. „Sveitarstjórn Dalabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri staðreynd að nú séu að veiðast eldislaxar í ám í sveitarfélaginu líkt og reyndin…Lesa meira