
Búast má við umferðartöfum á þjóðveginum við Fornahvamm á Holtavörðuheiði í kvöld á milli klukkan 18 og 20 vegna fjárreksturs. Þá verður fé sem nú er smalað af Holtavörðuheiði rekið yfir veginn, áleiðis til Þverárréttar. Veður er slæmt til smalamennsku í dag, en nú rétt í þessu var 17 m/sek vindur á Holtavörðuheiði, úrkoma og…Lesa meira








