Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 454 á tíu mánuðum

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 454 á tíu mánaða tímabili frá 1. desember 2022 til 1. september síðastliðins. Þetta jafngildir 2,6% fjölgun. Hlutfallslega langmesta fjölgun íbúa á landsvísu varð í Eyja- og Miklaholtshreppi, þar sem fjölgaði á tímabilinu um 17 íbúa eða um 15,2%. Íbúum fjölgaði í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi utan Dalabyggðar, en þar var fækkunin einungis um einn íbúa, eða um 0,2%. Í Borgarbyggð fjölgaði um 215 á tímabilinu eða um 5,3% og á Akranesi fjölgaði um 174 sem jafngildir 2,2%

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 454 á tíu mánuðum - Skessuhorn