Grunur um myglu í grunnskólanum í Borgarnesi

Foreldrum nemenda í grunnskólanum í Borgarnesi var í gær sendur póstur frá starfandi skólastjóra grunnskólans og sviðsstjóra fjölskyldusviðs varðandi það að tekin hefði verið sú ákvörðun að loka tveimur stofum 10. bekkjar sem eru staðsettar í eldri byggingu skólans. Var sú ákvörðun tekin þar sem þau vildu tryggja öryggi nemenda og starfsfólks skólans. „Við höfum grun um raka í einni stofunni en getum hvorki staðfest né útilokað að um myglu sé að ræða í hinum kennslustofunum. Þó svo það sé ekki sterkar vísbendingar á þessum tímapunkti um skaðlega myglu í rýminu þá fannst okkur ekki forsvaranlegt að vera með kennslu í stofunum þar til það væri komið á hreint að ekki væri um myglu að ræða.“

Grunur um myglu í grunnskólanum í Borgarnesi - Skessuhorn