
Björgunarsveitum á Austurlandi barst klukkan 20 í gær útkall. Ungur maður hafði þá lent í sjálfheldu í klettabelti hátt uppi í Tunguröð, fjalli milli Daladals og Tungudals inn af Fáskrúðsfirði. Drónar voru notaðir til að staðsetja manninn og hafa yfirsýn yfir svæðið á meðan á flóknum aðgerðum stóð. Björgunarsveitir frá Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Neskaupstað komu…Lesa meira








