Fréttir

true

Rekstri Skagans 3X á Ísafirði hætt og starfsfólki sagt upp

Stjórn Skagans 3X hefur ákveðið að leggja niður starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði og hefur öllum 27 starfsmönnum fyrirtækisins þar verið sagt upp störfum. Ákvörðunin byggir á umfangsmikilli endurskipulagningu og hefur þegar verið kynnt bæjaryfirvöldum á Ísafirði og verkalýðsfélögum. „Rekstur Skagans 3X hefur verið mjög þungur síðustu misseri og eins og áður hefur komið fram þurfti…Lesa meira

true

Nýr stöðvarstjóri N1 í Ólafsvík

Aría Jóhannesdóttir tók um miðjan júní við sem stöðvarstjóri í verslun N1 í Ólafsvík af Einari Rúnari Ísfjörð sem lét af störfum í lok maí. Auk hennar eru Gunnlaugur Páll Einarsson og Guðný Clausen fastráðnir starfsmenn í versluninni. Aría segir að vel hafi gengið þessa fyrstu tvo mánuði hjá sér í þessari nýju vinnu: „Það…Lesa meira

true

Nú er bannað að selja grágæs – nema hún sé uppstoppuð

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum. Nú er óheimilt að bjóða til sölu eða selja grágæs og afurðir hennar. Einnig er óheimilt að flytja hana út. Heimilt er þó að selja uppstoppaða gæs. „Á undanförnum árum hefur grágæsarstofninum hnignað og er sölubann sett fram…Lesa meira

true

Rallað um Vesturland um helgina

Nú um helgina, dagana 18.-20. ágúst, fer Reykjavíkur Rallý fram og er keppnin styrkt af Hreinsitækni. Ekið verður víðsvegar um suðvesturhorn landsins. Ræst verður í keppnina síðdegis í dag frá Smáratorgi og meðal annnars ekið við Djúpavatn. Á morgun laugardag verður svo ekið um Snæfellsnes. Til dæmis um Berserkjahraun, Prestahraun og Jökulháls en endað annað…Lesa meira

true

Skemmtilegt sumar hjá Öldunni

Aldan í Borgarnesi er vinnustaður sem býður upp á verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjálfun fyrir fatlað fólk. Aldan rekur verslun, saumastofu, kertagerð og tekur að sér pökkun, límmerkingar á alls kyns varningi fyrir stofnanir og fyrirtæki ásamt tilfallandi verkefnum. Aldan var með skemmtilega dagskrá í sumar í samstarfi við Símenntun Vesturlands. Þetta kemur fram í…Lesa meira

true

VR hættir viðskiptum við Íslandsbanka

Stéttarfélagið VR hefur ákveðið að hætta bankaviðskiptum sínum við Íslandsbanka og leitar nú tilboða hjá öðrum fjármálafyrirtækjum um þjónustuna. Í tilkynningu frá stjórn VR kemur fram að félagið telur brot bankans við sölumeðferð á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka með öllu óásættanleg. „VR kallaði eftir því að stjórn bankans og það starfsfólk sem ábyrgð ber á…Lesa meira

true

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu er að lækka

Samkvæmt samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) er íbúðaverð að lækka á höfuðborgarsvæðinu. Vísitala íbúðaverðs þar lækkaði um 0,8% á milli mánaða, en síðastliðna þrjá mánuði hefur hún lækkað um 1,2%, síðastliðna sex mánuði hafði hún hins vegar hækkað um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 0,8%. Ef einungis er horft til sérbýlis, þ.e.…Lesa meira

true

Árleg kaffisala verður í Ölveri á sunnudaginn

Næstkomandi sunnudag mun KFUM og K standa fyrir sinni árlegu kaffisölu í Ölveri við rætur Hafnarfjalls. Þar gefst tækifæri til að heimsækja staðinn, kynnast hlýlegu umhverfi hans og húsakosti í Ölveri. Hægt verður að gæða sér á ljúffengum veitingum og styrkja um leið starfsemina. Kaffisalan verður frá klukkan 14-17. Loks er í tilkynningu bent á…Lesa meira

true

Lokið við endurgerð hinnar formfögru Ólafsvíkurréttar

Í viðtali sem birtist við Guðrúnu Tryggvadóttur í Ólafsvík í Skessuhorni haustið 2014 sagði hún meðal annars: „Þetta er ákaflega fallegt svæði uppi í Krókabrekkunum hérna við Ólafsvík þar sem gamla réttin er. Ég held það séu margir sem hafa áhuga og vilja taka þátt í endurgerð gömlu réttarinnar. Það sem þarf er að einhverjir…Lesa meira