
Kortavelta í júlímánuði nam 133,8 milljörðum króna. Þar af var innlend kortavelta 92,1 milljarðar króna en það er lækkun um 2,2% frá júnímánuði. Innlenda kortaveltan jókst á milli ára í júlí um 5,4%. Þetta kemur fram í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar. Netverslun Íslendinga jókst um 20% á milli ára og nam 14,6 milljörðum króna. Erlend kortavelta…Lesa meira








