
Í sumarlokun leikskólans Sólvalla í Grundarfirði hefur verið unnið að ýmsum viðhaldsframkvæmdum. Á fréttasíðu Grundarfjarðarbæjar er greint frá því að meðal helstu framkvæmda hafi verið að skipta um gólfefni á sameiginlegum rýmum allra deilda og á starfsmannagangi, fræstar voru gólfhitalagnir í gólf í elsta hluta hússins og blikksmiðir lagfærðu loftræstikerfi. Stærstu rýmin, tvö minni herbergi…Lesa meira








