
Settar hafa verið upp þrjár rafbílahleðslustöðvar á Akranesi fyrir almenning í samvinnu við ON. Þetta er á þremur stöðum þar sem búið var að undirbúa uppsetninguna áður, á bílastæði golfklúbbsins Leynis við Garðavelli, á bílastæði á Stillholti 16-18 og við Brekkubæjarskóla. ON hefur hafið uppsetningu á þremur staurum með tveimur tenglum fyrir alls sex bifreiðar…Lesa meira








