Fréttir

true

Hafrafellslón komið á yfirfall og gæti hlaupið úr því

Fólk hvatt til að hafa varann á sér komi til flóðs Nú er talið mögulegt að hlaupið geti úr Hafrafellslóni, sem er í krika vestan til við jaðar Langjökuls, en lónið hefur frá því um mitt sumar verið fullt. Vísindamenn hafa reyndar velt þeirri spurningu upp hvort eitthvað hafi breyst í farveginum undir jöklinum eftir…Lesa meira

true

Gerir ráð fyrir að hefja hvalveiðar um mánaðamótin

Eins og kunnugt er tilkynnti Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra um þá ákvörðun sína, degi áður en hvalveiðar áttu að hefjast í júní síðastliðnum, að banna tímabundið veiðar á langreyðum til 31. ágúst. Það gerði hún á grundvelli niðurstöðu úr eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar og að fengnu áliti fagráðs. Í ljósi þess að hefja átti veiðarnar daginn eftir var…Lesa meira

true

Lýsir vonbrigðum með hægagang í gatnaframkvæmdum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 3. ágúst síðastliðinn lagði Sigurður Guðmundsson fulltrúi Sjálfstæðisflokks í ráðinu fram bókun í tengslum við fjárfestingaáætlun. Þar lýsir hann vonbrigðum með framgang gatnagerðarverkefna sem unnið er að í sveitarfélaginu. „Þeir verktakar sem vinna að gatnagerðarverkefnunum virðast ekki setja neinn kraft eða metnað í að vinna verkefnin hratt og örugglega. Verklegar framkvæmdir…Lesa meira

true

Gera fjölþættar athugasemdir við Samgönguáætlun 2024-2038

Eins og fram hefur komið í Skessuhorni hefur Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins lagt fram í samráðsgátt drög að samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038. Allir gátu sent inn athugasemdir vegna hennar til síðustu mánaðamóta. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi voru meðal umsagnaraðila og þar á meðal sveitarfélagið Borgarbyggð, sem einnig lagði inn sína eigin umsögn…Lesa meira

true

Jákvæðari rekstrarniðurstaða en reiknað hafði verið með

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lagður fram samanburður á rekstri sveitarfélagsins á fyrri hluta ársins, janúar til júní, við fjárhagsáætlun. Samkvæmt áætluninni var gert ráð fyrir að gjöld umfram tekjur væru 75 m.kr. á tímabilinu, en rauntölur sýna að gjöldin eru 11 milljónum króna meiri en tekjurnar. Launakostnaður á tímabilinu er um…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá í boði á Hvanneyrarhátíð 12. ágúst

Hin fjölskylduvæna Hvanneyrarhátíð verður haldin laugardaginn 12. ágúst nk. frá klukkan 13:30 til 17 á Hvanneyri. Þennan dag taka heimamenn vel á móti gestum og gangandi með fjölbreyttri dagskrá. Upphaf hátíðarinnar má rekja til Safnadagsins sem Landbúnaðarsafn Íslands tók þátt í og bauð þá velunnurum sem og gömlum nemendum að koma á Hvanneyri og kíkja…Lesa meira

true

Aðsetur Landmælinga Íslands flutt um set

Landmælingar Íslands hafa nú formlega flutt aðsetur sitt frá Stillholti 16-18 á Akranesi þar sem stofnunin hefur verið til húsa frá 1. janúar árið 1999 og er nýtt aðsetur stofnunarinnar að Smiðjuvöllum 28. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar, www.lmi.is. Í nýjum heimkynnum hefur verið innréttað vel búið rými fyrir starfsemina og byggist hönnunin á…Lesa meira

true

Úr safni: „Ég er háður því að vera hér“

Viðtaið birtist fyrst í jólablaði Skessuhorns árið 2022. Rætt við Magnús Tómasson myndlistarmann á Ökrum Magnús Tómasson er höfundur þekktra listaverka eins og Þotuhreiðursins við Leifsstöð og Minnismerkisins um óþekkta embættismanninn við Tjörnina. Hann er borinn og barnfæddur í Reykjavík en hefur búið á Ökrum á Mýrum í áratugi og vill hvergi fara. Blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Skrifstofan lokuð til 8. ágúst

Starfsfólk Skessuhorns er í sumarleyfi frá miðvikudeginum 2. ágúst til og með þriðjudagsins 8. ágúst. Skrifstofan verður lokuð þessa daga. Það kemur því EKKI út blað miðvikudaginn 9. ágúst. Fréttavakt verður á vefnum og hægt að senda tilkynningar til birtingar þar á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is. Næsta blað kemur út 16. ágúst. Mynd: Veggmynd eftir Baska við…Lesa meira

true

Vinnuslys við slátt

Á þriðja tímanum í gær, laugardag, var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til vegna vinnuslyss í Dölum. Slysið hafði orðið við heyskap og voru tildrög þess með þeim hætti að blað losnaði úr sláttuvél og skaust í fót ökumanns. Fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá því að samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi hafi viðkomandi slasast töluvert á fæti,…Lesa meira