
Gera fjölþættar athugasemdir við Samgönguáætlun 2024-2038
Eins og fram hefur komið í Skessuhorni hefur Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins lagt fram í samráðsgátt drög að samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038. Allir gátu sent inn athugasemdir vegna hennar til síðustu mánaðamóta. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi voru meðal umsagnaraðila og þar á meðal sveitarfélagið Borgarbyggð, sem einnig lagði inn sína eigin umsögn við áætlunina. Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 3. ágúst síðastliðinn var umræða um áherslur í samgöngumálum. „Byggðarráð Borgarbyggðar gerir athugasemdir við margt sem fram kemur og ekki síður það sem ekki kemur fram í samgönguáætlun 2024-2038 eins og fram kemur í umsögn sveitarfélagsins sem send var inn í samráðsgátt,“ sagði í bókun ráðsins og einnig: „Byggðarráð bindur vonir við að þingmenn kjördæmisins fylgi þessum athugasemdum eftir í umræðum og ákvarðanatöku um samgönguáætlun.“