Fréttir

true

Íþróttaakademía við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Við Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður framvegis starfrækt íþróttaakademía. Skrifað var undir samning þar að lútandi í gær. Undir samninginn skrifuðu Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson f.h. Snæfells, Hjördís Pálsdóttir f.h. Körfuknattleiksdeildar Snæfells, Tinna Ýr Gunnarsdóttir f.h. Umf. Víkings/Reynis og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Nemendur í FSN munu geta unnið sér inn námseiningar og samhliða því fengið markvissa…Lesa meira

true

Bílasala eykst á milli ára

Talsverð aukning hefur verið í bílasölu hér á landi en hún jókst milli ára um 6,3% á föstu verðlagi, en 20,6% á breytilegu verðlagi. Þetta kemur fram í nýrri smásöluvísitölu Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV). Þá er örlítil hækkun í matvöruverslunum milli ára eða 0,8% á föstu verðlagi en 13,4% á breytilegu verðlagi. RSV reiknar og birtir…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Elín Elísabet Einarsdóttir

Vissi ekki að það væri raunhæft að starfa sem listamaður Borgnesingurinn Elín Elísabet Einarsdóttir er gestur Skinkuhornsins þessa vikuna. Hún starfar sem teiknari en í starfi sínu er hún málari, grafískur teiknari, hönnuður og margt fleira. Elín sinnir fjölbreyttum verkefnum og hefur frá ýmsu að segja í Skinkuhorni vikunnar, m.a. frá námi sínu við Myndlistaskólann…Lesa meira

true

Magnús B og Steinunn gefa upplýsingaskilti í Hvanneyrarkirkjugarð

Á undanförnum árum hefur verið unnið að endurbótum á legstaðaskrá Hvanneyrarkirkjugarðs. Nokkur leiði voru ekki skráð og eins vantaði nokkuð upplýsingar um fæðingardaga og ár og eins hvar  viðkomandi átti heima. Sóknarnefndin fékk Magnús B. Jónsson til að vinna að endurbótum að legstaðaskránni og lauk því verki síðastliðinn vetur. Þá eru óskráð legstæði nokkurra einstaklinga…Lesa meira

true

Landsmót 50+ í Stykkishólmi gekk mjög vel – MYNDASYRPA

Það var frábært veður á Landsmóti 50 ára og eldri sem haldið var í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Gunnhildar Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra HSH gekk framkvæmd mótsins frábærlega og hún segir að svona mót sé ekki haldið nema með öflugum sjálfboðaliðum sem skiluðu sínu mjög vel. Fjöldi þátttakenda var yfir meðallagi, voru um 320 en Gunnhildur…Lesa meira

true

Lokadagur í kofabyggðinni í Grundarfirði

Fyrir helgina lauk kofasmiðjunni í Grundarfirði en það hafði verið starfrækt síðustu tvær vikur. Kofasmiðjan var í umsjón Thors Kolbeinssonar en þár gátu krakkar fæddir 2011 til 2013 tekið til hendinni og smíðað kofa eða aðra smíðagripi. Síðasta daginn var uppskerunni fagnað og kveiktur varðeldur þar sem grillaðir voru sykurpúðar, pylsur og poppað yfir opnum…Lesa meira

true

Aldursflokkameistaramót Íslands var á Akureyri um helgina

Um síðustu helgi var Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi haldið á Akureyri. Keppendur á mótinu voru stelpur 14 ára og yngri og strákar 15 ára og yngri og tóku 217 keppendur frá 14 félögum um allt land þátt í mótinu. Til að öðlast keppendarétt á mótinu þurfti sundfólkið að synda undir lágmarkstímum. Sundfélag Akraness mætti til leiks…Lesa meira

true

Viðreisn vill að þing verði kallað saman til að ræða sölu Íslandsbanka

Þingflokkur Viðreisnar hefur farið fram á að Alþingi verði kallað saman sem fyrst vegna niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins um lögbrot við sölu Íslandsbanka. „Þingmenn Viðreisnar telja mikilvægt að þingið ræði þá alvarlegu stöðu sem upp er komin og taki afstöðu til fyrri kröfu stjórnarandstöðunnar um skipan rannsóknarnefndar til að rannsaka málsatvik sölunnar og ferlisins við hana frá…Lesa meira

true

Skallagrímur vann góðan sigur á Álftanesi

Skallagrímur og Álftanes mættust í 7. umferð 4. deildar karla í gærkvöldi og fór leikurinn fram í blíðskaparveðri á Skallagrímsvelli. Viktor Ingi Jakobsson kom Skallagrími yfir á sjöundu mínútu með frábæru skoti fyrir utan vítateig en Mariusz Baranowski skoraði fyrir Álftanes úr aukaspyrnu átta mínútum síðar. Ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik og…Lesa meira

true

Lions afhendir styrk fyrir saunatunnu

Fimmtudaginn í síðustu viku mættu meðlimir Lionsklúbbs Grundarfjarðar upp í sundlaug og afhentu veglega peningagjöf fyrir saunatunnu sem komin er upp við Sundlaugina. Safnað var fyrir tunnunni á kútmagakvöldi félagsins fyrr á árinu og nú er hún uppsett og tilbúin. Þetta er mikil og góð viðbót við íþróttamannvirki bæjarins enda ekki verið hægt að fara…Lesa meira