Fréttir

true

Sveitarstjórn vill ekki sjá neitt lát á endurbótum vega

Vegamál voru til umræðu í sveitarstjórn Dalabyggðar þann 15. júní sl. Framlögð voru drög að nýrri samgönguáætlun innviðaráðherra til fimmtán ára (2024-2038) og jafnframt var kynnt skýrsla atvinnumálanefndar Dalabyggðar um vegamál og forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð. Var skýrslan samþykkt samhljóða. Í Samgöngu- og innviðaáætlun Vesturlands (endurskoðuð 2021) kemur fram að einungis 9 sveitarfélög á Íslandi…Lesa meira

true

Matvælaráðuneytið semur við Landbúnaðarháskólann

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands (Lbhí) hafa undirritað samning um þjónustu á sviði rannsókna, þróunarvinnu og sérhæfðrar ráðgjafar fyrir árin 2023-2024. Samkvæmt samningnum felur ráðuneytið skólanum að vinna að rannsóknum, þróun og nýsköpun á sviði landbúnaðar og matvælaframleiðslu. Fjárframlögum sem fylgja samningnum verður varið til verkefna sem styrkja megináherslur í…Lesa meira

true

Frumsýning á tveimur nýjum rafmagnsstrætóum

Seinni partinn í gær var boðið til frumsýningar á nýjum rafmagnsstrætóum í húsnæði Reynis Jóhannssonar að Smiðjuvöllum 26 á Akranesi. Þeir verða notaðir í almenningssamgöngur á Akranesi næstu árin og var krafan í útboði að aðalbíll skyldi vera rafmagnsbíll en fyrirtækið ákvað að festa kaup á tveimur þannig. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra…Lesa meira

true

VBF Mjölnir ehf. með lægsta boð í Klofningsveg

Vegagerðin hefur opnað tilboð í endurbyggingu á um 8,5 km kafla á Klofningsvegi í Dalabyggð, frá Vestfjarðarvegi að Kýrunnarstöðum. Fjögur tilboð bárust í verkið og munaði tæplega 30 milljónum króna á hæsta og lægsta boði, sem öll voru hærri en áætlaður verktakakostnaður. Stórverk ehf., í Þorlákshöfn var með hæsta tilboðið, rúmlega 363 milljónir. Borgarverk ehf.,…Lesa meira

true

Samráðshópur skipaður um skólamál á Varmalandi

Á fundi fræðslunefndar Borgarbyggðar mánudaginn 12. júní var ákveðið að stofnaður yrði samráðshópur með foreldrum við Varmalandsdeild Grunnskóla Borgarfjarðar. Var þetta ákveðið í kjölfar þess að íbúafundur var haldinn í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi í síðasta mánuði en þar komu saman foreldrar og hagsmunaaðilar Varmalandsdeildar Grunnskóla Borgarfjarðar. Boðað var til íbúafundar eftir að sveitarstjórn Borgarbyggðar…Lesa meira

true

Enduráætla almenn framlög til málaflokks fatlaðs fólks

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, samþykkti nýlega tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk árið 2023. Framlögin voru endurreiknuð með hliðsjón af búferlaflutningum og nýliðun í samstarfi við sveitarfélög og þjónustusvæði um málefni fatlaðs fólks. Framlögin skiptast þannig að 88% þeirra miða við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 10,75% miða við…Lesa meira

true

Aukinn stuðningur við staðbundna fjölmiðla – Fjölmiðlafrumvarpið

Frumvarp menningar- og viðskiptaráðherra um áframhaldandi stuðning stjórnvalda við einkarekna fjölmiðla var samþykkt á Alþingi á síðustu dögum þingsins fyrir sumarfrí. Um er að ræða frumvarp um breytingu á lögum um fjölmiðla, en ákvæði laganna um stuðninginn féll úr gildi um síðustu áramót. Ákvæðið hefur nú verið framlengt til ársloka 2024. Þannig verður áfram stutt…Lesa meira

true

Ljósmyndasamkeppni Snæfellsbæjar 2023

Snæfellsbær efnir til ljósmyndasamkeppni í annað skipti. Menningarnefnd Snæfellsbæjar heldur utan um verkefnið ásamt markaðs- og upplýsingafulltrúa og hefur verið ákveðið að þemað í samkeppninni í ár verði menning og mannlíf í Snæfellsbæ. Mögulegt er að senda inn myndir frá 15. júní til og með 31. ágúst 2023 og segir á vef Snæfellsbæjar að vegleg verðlaun verði…Lesa meira

true

Skundað um Stykkishólm – MYNDASYRPA

Það var sannkölluð bongóblíða í Stykkishólmi í gær þegar blaðamaður Skessuhorns gerði sér ferð vestur til að afla frétta úr Hólminum. Á ferð sinni um bæinn kom hann við á sumarnámskeiði, kíkti á lífið við höfnina, fór út í Súgandisey, leit inn á Æðarsetur Íslands við Frúarstíg og á kaffihúsið Sjávarborg á Hafnargötu ásamt ýmsu…Lesa meira

true

Vinnuskólinn kominn á fulla ferð

Vinnuskóli Akraness hófst í byrjun júní og er samkvæmt handbók Vinnuskólans bæði vinna og skóli. Hann er félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Auk þess leggur Vinnuskólinn áherslu á eftirfarandi þætti í starfsemi sinni: Að gefa ungmennum á Akranesi tækifæri til að sinna og kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum störfum þar…Lesa meira