
Haraldur Benediktsson, Líf Lárusdóttir, Reynir Jóhannsson, Sigurður Reynisson, Reynir Snær Birkisson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Birkir Snær Guðlaugsson fögnuðu áfanganum. Ljósm. vaks
Frumsýning á tveimur nýjum rafmagnsstrætóum
Seinni partinn í gær var boðið til frumsýningar á nýjum rafmagnsstrætóum í húsnæði Reynis Jóhannssonar að Smiðjuvöllum 26 á Akranesi. Þeir verða notaðir í almenningssamgöngur á Akranesi næstu árin og var krafan í útboði að aðalbíll skyldi vera rafmagnsbíll en fyrirtækið ákvað að festa kaup á tveimur þannig. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Haraldur Benediktsson bæjarstjóri voru viðstaddir ásamt starfsmönnum og öðrum boðsgestum og héldu þeir Haraldur og Guðlaugur smá tölu.