
Klofningsvegur á Fellsströnd er illa farinn og hefur verið það lengi. Myndin er nokkurra ára gömul.
Sveitarstjórn vill ekki sjá neitt lát á endurbótum vega
Vegamál voru til umræðu í sveitarstjórn Dalabyggðar þann 15. júní sl. Framlögð voru drög að nýrri samgönguáætlun innviðaráðherra til fimmtán ára (2024-2038) og jafnframt var kynnt skýrsla atvinnumálanefndar Dalabyggðar um vegamál og forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð. Var skýrslan samþykkt samhljóða.