Fréttir

true

Samráðshópur skipaður um skólamál á Varmalandi

Á fundi fræðslunefndar Borgarbyggðar mánudaginn 12. júní var ákveðið að stofnaður yrði samráðshópur með foreldrum við Varmalandsdeild Grunnskóla Borgarfjarðar. Var þetta ákveðið í kjölfar þess að íbúafundur var haldinn í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi í síðasta mánuði en þar komu saman foreldrar og hagsmunaaðilar Varmalandsdeildar Grunnskóla Borgarfjarðar. Boðað var til íbúafundar eftir að sveitarstjórn Borgarbyggðar…Lesa meira

true

Enduráætla almenn framlög til málaflokks fatlaðs fólks

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, samþykkti nýlega tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk árið 2023. Framlögin voru endurreiknuð með hliðsjón af búferlaflutningum og nýliðun í samstarfi við sveitarfélög og þjónustusvæði um málefni fatlaðs fólks. Framlögin skiptast þannig að 88% þeirra miða við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 10,75% miða við…Lesa meira

true

Aukinn stuðningur við staðbundna fjölmiðla – Fjölmiðlafrumvarpið

Frumvarp menningar- og viðskiptaráðherra um áframhaldandi stuðning stjórnvalda við einkarekna fjölmiðla var samþykkt á Alþingi á síðustu dögum þingsins fyrir sumarfrí. Um er að ræða frumvarp um breytingu á lögum um fjölmiðla, en ákvæði laganna um stuðninginn féll úr gildi um síðustu áramót. Ákvæðið hefur nú verið framlengt til ársloka 2024. Þannig verður áfram stutt…Lesa meira

true

Ljósmyndasamkeppni Snæfellsbæjar 2023

Snæfellsbær efnir til ljósmyndasamkeppni í annað skipti. Menningarnefnd Snæfellsbæjar heldur utan um verkefnið ásamt markaðs- og upplýsingafulltrúa og hefur verið ákveðið að þemað í samkeppninni í ár verði menning og mannlíf í Snæfellsbæ. Mögulegt er að senda inn myndir frá 15. júní til og með 31. ágúst 2023 og segir á vef Snæfellsbæjar að vegleg verðlaun verði…Lesa meira

true

Skundað um Stykkishólm – MYNDASYRPA

Það var sannkölluð bongóblíða í Stykkishólmi í gær þegar blaðamaður Skessuhorns gerði sér ferð vestur til að afla frétta úr Hólminum. Á ferð sinni um bæinn kom hann við á sumarnámskeiði, kíkti á lífið við höfnina, fór út í Súgandisey, leit inn á Æðarsetur Íslands við Frúarstíg og á kaffihúsið Sjávarborg á Hafnargötu ásamt ýmsu…Lesa meira

true

Vinnuskólinn kominn á fulla ferð

Vinnuskóli Akraness hófst í byrjun júní og er samkvæmt handbók Vinnuskólans bæði vinna og skóli. Hann er félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Auk þess leggur Vinnuskólinn áherslu á eftirfarandi þætti í starfsemi sinni: Að gefa ungmennum á Akranesi tækifæri til að sinna og kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum störfum þar…Lesa meira

true

Kristín og Alexander keppa á Heimsmeistaramótinu í klassískum lyftingum um helgina

Heimsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fer fram þessa dagana í St. Julians á Möltu. Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir og Skagamaðurinn Alexander Örn Kárason eru þangað mætt til að etja kappi en 400 keppendur eru skráðir til leiks frá 60 löndum. Ásamt Kristínu og Alexander mun Akureyringurinn Viktor Samúelsson einnig keppa á mótinu fyrir Íslands hönd. Alexander Örn…Lesa meira

true

Greining á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis lögð fram

Unnin hefur verið greining á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis í samræmi við ákvörðun dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra í samvinnu við heilbrigðisráðherra. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Markmið verkefnisins var að greina hentugustu leiðir til að tryggja starfsemi miðstöðva fyrir þolendur ofbeldis til framtíðar á Íslandi og hver aðkoma lögreglunnar ætti að vera að…Lesa meira

true

Framlengja starfsleyfi Hvals hf. til 12. júlí

Heilbrigðisnefnd Vesturlands hefur fallist á að framlengja gildandi starfsleyfi Hvals hf. til 12. júlí nk. en Hvalur hf. hefur verið án starfsleyfis frá 1. maí 2023 þegar fyrri framlenging leyfisins féll úr gildi. Til að Hvalur hf. haldi áfram starfsemi eftir 12. júlí þarf Heilbrigðiseftirlit Vesturlands að gefa út nýtt starfsleyfi og hefur vinna við…Lesa meira

true

Stuð á Sumargleði í Garðaseli

Það var mikið fjör á leikskólanum Garðaseli á Akranesi í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns átti þar leið fram hjá. Þar var í gangi sumargleði leikskólans á þessum fallega degi. Hoppukastalar voru í boði foreldrafélagsins og í hádeginu verða grillaðar pylsur fyrir börnin og starfsfólkið. Ekki var annað að sjá en að allir væru að njóta…Lesa meira