Fréttir

true

Stofna safnaklasa Vesturlands

Þriðjudaginn 6. júní næstkomandi verður formlega stofnaður klasi safna, sýninga og setra á Vesturlandi. Það verður gert í Snorrastofu í Reykholti og hefst viðburðurinn klukkan 17. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra menningarmála, mun ávarpa fundinn. Í tilefnin að stofnuninni verður boðið uppá fræðsluerindi um safnamál, auk tónlistaratriðis og léttra veitinga. „Klasi safna, sýninga og setra er…Lesa meira

true

Mörg listaverka Ásmundar að finna á Vesturlandi

Á menningarvef SSV er það rifjað upp að 20. maí síðastliðinn voru 130 ár liðin frá fæðingu Ásmundar Sveinssonar listamanns. Ásmundur fæddist að Kolsstöðum í Dölum 1893. Hann var sonur hjónanna Sveins Finnssonar bónda og Helgu Eysteinsdóttur húsfreyju. Á bernskuárum Ásmundar flutti fjölskyldan að Eskiholti í Borgarhreppi þar sem Ásmundur sleit barnsskónum. Snemma fór hann…Lesa meira

true

Slasaðist þegar skipið fékk á sig brotsjó

Á sjötta tímanum í nótt barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð. Skipverji á togskipi sem statt var út af Snæfellsnesi hafði slasast þegar skipið fékk á sig brotsjó. Skömmu síðar hélt þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ frá Reykjavíkurflugvelli. Um klukkan hálf átta var búið að ná skipverjanum um borð í þyrluna og flogið með hann á Landspítalann…Lesa meira

true

Gera ráð fyrir krapa eða snjó á heiðum

Veðurspá framunda er þannig að það verður sunnan- og suðvestan 8-15 m/s og rigning eða skúrir í dag, en úrkomulítið norðaustanlands. Vestlægari á morgun, úrkomulítið seinnipartinn og fer að lægja, en rigning á sunnanverðu landinu annað kvöld. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast norðaustantil. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir: „Með köldu lofti úr vestri mun…Lesa meira

true

Bát rak að landi

Klukkan 09:48 í morgun barst björgunarsveitum útkallsbeiðni á hæsta forgangi. Þá var vélarvana bátur staddur fyrir mynni Hvalfjarðar í vestan roki og rak stjórnlaust í átt að landi. Skömmu síðar var beiðni um aðstoð afturkölluð þegar tekist hafði að koma vél bátsins í gang að nýju. Allt fór því vel.Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Í gær, föstudaginn 19. maí, voru 52 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi af níu mismunandi námsbrautum. Átta útskrifuðust af félagsfræðabraut, þrír af náttúrufræðabraut, átta af opinni stúdentsbraut, einn af starfsbraut, þrír af sjúkraliðabraut, fimm af málm- og véltæknibraut (þar af einn einnig með viðbótarnám við iðngrein til stúdentsprófs), fimm úr vélvirkjun og 14…Lesa meira

true

Tók þátt í einu sterkasta sundmóti Evrópu

Einar Margeir Ágústsson frá Sundfélagi Akraness keppti með A-landslið Íslands á Mare Norstrum mótaröðinni sem fram fór í Barcelona dagana 17-18. maí sl. Þar stóð hann sig með ágætum. Ísland sendi sjö fulltrúa á mótið sem er eitt af sterkustu mótum sem haldið er í Evrópu. Þar tóku þátt sundmenn frá 46 löndum og öllum…Lesa meira

true

Áhuginn á poppmúsík og hljómsveitamennsku var ódrepandi

Spjallað við skólamanninn og popparann Svein Þór Elinbergsson í Ólafsvík – Viðtal úr Jólablaði Skessuhorns frá 2013 Nafn Sveins Þórs Elinbergssonar bar fljótlega á góma þegar svipast var um eftir álitlegu viðtalsefni í jólablað Skessuhorns 2013. Sveinn hefur starfað lengi að skólamálum eða í 27 ár, lengst af í Ólafsvík og Snæfellsbæ. Í dag er…Lesa meira

true

Ráðinn í eignaumsjón hjá Grundarfjarðarbæ

Bergvin Sævar Guðmundsson hefur verið ráðinn til starfa við eignaumsjón hjá Grundarfjarðarbæ. Sævar hefur sinnt starfinu í afleysingum frá því í byrjun september 2022 en starfið var auglýst 21. apríl síðastliðinn og var gengið frá ráðningu í kjölfarið. Fram kemur á vef Grundarjarðarbæjar að starfið feli í sér umsjón fasteigna og annarra mannvirkja bæjarins, eftirliti…Lesa meira

true

Ásmundur Einar í heimsókn í Brekkubæjarskóla

Síðastliðinn þriðjudag kom Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, í heimsókn í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Ásmundur og aðstoðarmenn hans, Sóley Ragnarsdóttir og Teitur Erlingsson, fengu kynningu á teymiskennslu í Brekkubæjarskóla, heimsóttu nemendur í nokkrum bekkjum skólans og fengu innsýn í skólastarfið. Á heimasíðu Brekkubæjarskóla kemur fram að nemendur úr nemendaráði skólans hefðu kynnt vinnu nemendaráðs…Lesa meira