
Hér er Ásmundur Sveinsson að vinna við frumgerð styttunnar af Guðríði, Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku. Myndin er tekin á vinnustofu Ásmundar árið 1937 en styttan var send á heimssýninguna í New York 1939. Afsteypa af henni er m.a. við Laugarbrekku á Snæfellsnesi og komst á síðasta ári í fréttir þegar henni var stolið og notuð sem hluti af skúlptúr. Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson.
Mörg listaverka Ásmundar að finna á Vesturlandi
Á menningarvef SSV er það rifjað upp að 20. maí síðastliðinn voru 130 ár liðin frá fæðingu Ásmundar Sveinssonar listamanns. Ásmundur fæddist að Kolsstöðum í Dölum 1893. Hann var sonur hjónanna Sveins Finnssonar bónda og Helgu Eysteinsdóttur húsfreyju. Á bernskuárum Ásmundar flutti fjölskyldan að Eskiholti í Borgarhreppi þar sem Ásmundur sleit barnsskónum. Snemma fór hann að sýna hæfileika á sviði myndlistar og árið 1915 fór hann í læri til Ríkharðs Jónssonar í Reykjavík og stundaði hjá honum tréskurðarnám. Í framhaldi af því fór Ásmundur til Kaupmannahafnar árið 1918 og lærði teikningu í listaskóla Viggo Brandt. Eftir einn vetur þar lá leiðin til Stokkhólms þar sem hann útskrifaðist fullnuma listamaður árið 1926.