
Gera ráð fyrir krapa eða snjó á heiðum
Veðurspá framunda er þannig að það verður sunnan- og suðvestan 8-15 m/s og rigning eða skúrir í dag, en úrkomulítið norðaustanlands. Vestlægari á morgun, úrkomulítið seinnipartinn og fer að lægja, en rigning á sunnanverðu landinu annað kvöld. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast norðaustantil. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir: „Með köldu lofti úr vestri mun gera snjó og krapa frá því seint í kvöld og í nótt vestantil á landinu ofan 100-200 metra. Það gildir m.a. um vegina yfir Hellisheiði, Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.“