
Útskriftarhópurinn vorið 2023 með skólameistara og aðstoðarskólameistara. Ljósm. FVA
Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands
Í gær, föstudaginn 19. maí, voru 52 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi af níu mismunandi námsbrautum. Átta útskrifuðust af félagsfræðabraut, þrír af náttúrufræðabraut, átta af opinni stúdentsbraut, einn af starfsbraut, þrír af sjúkraliðabraut, fimm af málm- og véltæknibraut (þar af einn einnig með viðbótarnám við iðngrein til stúdentsprófs), fimm úr vélvirkjun og 14 húsasmiðir. Auk þess luku fimm nemendur viðbótarnámi við iðngrein til stúdentsprófs. Elsa María Einarsdóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi með einkunnina 9,34. Þær Elsa María og Árný Lind Árnadóttir hlutu námsstyrk frá Akraneskaupstað fyrir góðan námsárangur.