Fréttir

true

Dalabyggð auglýsir 17 störf í Auðarskóla

Auglýst eru til umsóknar 17 störf í Auðarskóla í Búðardal, en það er samrekinn grunn,- leik- og tónlistarskóli. Um 75 nemendur verða í grunnskóladeild skólans á næsta skólaári og um 22 börn í leikskólanum. Samkvæmt heimasíðu Auðarskóla voru 44 starfsmenn í skólanum í vetur, þar af þrír í leyfi. Nú er auglýst eftir: Deildarstjóra í…Lesa meira

true

Báturinn Ronja SH gjörónýtur eftir bruna í gær – myndskeið

Eins og fram kom í frétt hjá okkur fyrr í morgun, kom í gærkvöldi upp eldur í bátnum Ronju SH hvar hann var þá staddur skammt frá landi á móts við Kóngsbakka í Helgafellssveit. Skipverji komst frá borði og sakaði ekki. Björgunarsveitin Berserkir og Slökkvilið Stykkishólms voru kölluð út í gærkvöldi. Fram kemur í tilkynningu…Lesa meira

true

Banaslys við Arnarstapa á Snæfellsnesi

Rétt fyrir hádegi í gær, fimmtudaginn 18. maí, barst tilkynning til lögreglu um að maður hefði fallið fram af björgum við Arnarstapa á Snæfellsnesi og lægi hreyfingarlaus í fjörunni neðan klettanna. „Aðstæður til björgunarstarfa voru mjög erfiðar, ekki hægt að komast að fjörunni, nema sjóleiðina. Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi af lækni sem komst…Lesa meira

true

Góðgerðafélagið #Team Tinna hefur verið stofnað

Í dag er 19. maí, afmælisdagurinn sem Tinna Ósk Grímarsdóttir á Akranesi átti. Hún lést 11. febrúar síðastliðinn, 35 ára að aldri eftir harða baráttu við krabbamein. Tinna Ósk var kjörin Skagamaður ársins á þorrablóti í janúar síðastliðnum. Góðgerðarfélagið TeamTinna hefur nú verið stofnað í minningu Tinnu Óskar. „Markmið félagsins er að safna fjármagni fyrir…Lesa meira

true

Skagakonur enn á toppnum eftir sigur á Einherja

ÍA og Einherji frá Vopnafirði áttust við í 2. deild kvenna í knattspyrnu á miðvikudagskvöldið og var leikurinn í Akraneshöllinni. Leikurinn fór rólega af stað, Skagakonur voru meira með boltann en gekk lítið að skapa sér færi. Fyrsta og eina mark leiksins kom eftir tæpan hálftíma leik þegar Unnur Ýr Haraldsdóttir átti fína fyrirgjöf frá…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna hvassviðris í dag við Breiðafjörð

Frá klukkan 11 í dag og til miðnættis í kvöld er gul viðvörun í gildi fyrir Breiðafjörð, Vestfirði og Norðurland vestra. Við Breiðafjörð verður sunnan- og suðvestan hvassviðri, 15-20 m/s. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið 25-30 m/s, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi og í Dölunum. Þá gæti skyggni orðið takmarkað á fjallvegum í…Lesa meira

true

Eldur kom upp í Ronju SH skammt frá landi

Í gærkvöldi barst björgunarsveit og slökkviliði í Stykkishólmi útkall vegna elds í báti rétt utan við Stykkishólm. Eldur hafði orðið laus, sennilega frammi í lúkar, og skipverji réði ekki við hann og yfirgaf því bátinn. Honum var komið til bjargar af nærstöddum. Báturinn varð fljótt alelda, og rak nánast upp í fjöru suðvestan Stykkishólms á…Lesa meira

true

Göngufólki á Hafnarfjalli komið til bjargar

Um klukkan 19:30 í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð björgunarsveita á sunnanverðu Vesturlandi vegna tveggja göngumanna á Hafnarfjalli. Þeir voru orðnir kaldir og treystu sér ekki lengra á fjallinu. Björgunarsveitir frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði fóru til aðstoðar og gengu upp Hafnarfjall norðanvert. Nokkurn tíma tók að komast að fólkinu, en svartaþoka var á leitarsvæðinu.…Lesa meira

true

Endurunnið plast reynist sambærilegt að gæðum

Pólska fyrirtækið Folgos framleiðir plast sem sérhannað er sem heyrúlluplast. Plastið er það eina í heiminum sem að fullu er unnið úr endurunnu hráefni. Sumarið 2022 flutti íslenska fyrirtækið Silfraberg Umbúðalausnir ehf. inn lítið magn af umræddu plasti og dreifði meðal bænda í samstarfi við Fóðurblönduna og Lífland. „Markmiðið var að prófa þessa gerð plasts…Lesa meira

true

Blóðbankabíllinn verður á Snæfellsnesi í næstu viku

Í næstu viku mun Blóðbankabíllinn verða á ferðinni á Snæfellsnesi og eru íbúar hvattir til að nýta tækifærið og gefa blóð, til lífgjafar. Bíllinn verður við Kjörbúðina í Grundarfirði þriðjudaginn 23. maí kl. 12-17. Miðvikudaginn 24. maí verður hann við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi kl. 8:30-12 og sama dag við Sjoppuna í Ólafsvík frá klukkan 14:30-18.Lesa meira