
Góðgerðafélagið #Team Tinna hefur verið stofnað
Í dag er 19. maí, afmælisdagurinn sem Tinna Ósk Grímarsdóttir á Akranesi átti. Hún lést 11. febrúar síðastliðinn, 35 ára að aldri eftir harða baráttu við krabbamein. Tinna Ósk var kjörin Skagamaður ársins á þorrablóti í janúar síðastliðnum. Góðgerðarfélagið TeamTinna hefur nú verið stofnað í minningu Tinnu Óskar. „Markmið félagsins er að safna fjármagni fyrir félög og félagasamtök, láta gott af sér leiða í nærumhverfinu ásamt því að halda viðburði í anda Tinnu,“ segir Axel Freyr Gíslason eiginmaður Tinnu og gjaldkeri í nýja félaginu í samtali við Skessuhorn. Formaður hins nýstofnaða félags er Andrea Ýr Jónsdóttir: „Við ætlum að halda skemmtilega viðburði, hafa gaman í góðra vina hópi og safna smá pening í leiðinni,“ segir Andrea Ýr.
Upphaflega kemur hugmyndin að félaginu frá vinkonum Tinnu sem bjuggu til stuðningshóp í kringum hana meðan hún lifði. Fékk sá hópur nafnið #TeamTinna. Hópurinn hélt nokkra viðburði á síðasta ári. Má meðal annars nefna risabingó í lok mars sem Lalli töframaður ásamt Tinnu sjálfri stýrði. Svo var líklega stærsti einstaki viðburðurinn Reykjavíkurmaraþonið en þar safnaði hópurinn rúmlega milljón krónum sem runnu til Krafts, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.
Heimasíða félagsins verður opnuð í dag, 19. maí á afmælisdegi Tinnu, þar sem viðburðir verða auglýstir og jafnframt upplýsingar um hvernig hægt verður að styrkja félagið.
