
Blóðbankabíllinn verður á Snæfellsnesi í næstu viku
Í næstu viku mun Blóðbankabíllinn verða á ferðinni á Snæfellsnesi og eru íbúar hvattir til að nýta tækifærið og gefa blóð, til lífgjafar. Bíllinn verður við Kjörbúðina í Grundarfirði þriðjudaginn 23. maí kl. 12-17. Miðvikudaginn 24. maí verður hann við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi kl. 8:30-12 og sama dag við Sjoppuna í Ólafsvík frá klukkan 14:30-18.