Gul viðvörun vegna hvassviðris í dag við Breiðafjörð

Frá klukkan 11 í dag og til miðnættis í kvöld er gul viðvörun í gildi fyrir Breiðafjörð, Vestfirði og Norðurland vestra. Við Breiðafjörð verður sunnan- og suðvestan hvassviðri, 15-20 m/s. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið 25-30 m/s, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi og í Dölunum. Þá gæti skyggni orðið takmarkað á fjallvegum í dimmum skúrum eða slydduéljum. Varasamt getur verið að vera á ferð á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.

In english

At northern Snæfellsnes and generally in northwest parts of Iceland, is expected locally strong today; wind gusts crossing the roads by noon and afternoon and until evening. 

Gul viðvörun vegna hvassviðris í dag við Breiðafjörð - Skessuhorn