Báturinn var alelda þegar björgunaraðilar komu á vettvang. Ljósmynd og myndskeið: Landsbjörg

Báturinn Ronja SH gjörónýtur eftir bruna í gær – myndskeið

Eins og fram kom í frétt hjá okkur fyrr í morgun, kom í gærkvöldi upp eldur í bátnum Ronju SH hvar hann var þá staddur skammt frá landi á móts við Kóngsbakka í Helgafellssveit. Skipverji komst frá borði og sakaði ekki. Björgunarsveitin Berserkir og Slökkvilið Stykkishólms voru kölluð út í gærkvöldi. Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu að eldsins varð fyrst vart í lúkar og réði skipverj ekki við að slökkva og yfirgaf því bátinn. Báturinn varð fljótt alelda, og rak nánast upp í fjöru þar sem Slökkvilið Stykkishólms gat barist við eldinn frá landi.

Báturinn Ronja SH gjörónýtur eftir bruna í gær - myndskeið - Skessuhorn