Fréttir

true

Viljalýsing undirrituð um uppbyggingu græns iðngarðs á Grundartanga

Í morgun undirrituðu eigendur Þróunarfélags Grundartanga og fyrirtækin sem starfa á Grundartangasvæðinu viljayfirlýsingu um uppbyggingu græns iðngarðs með hringrásarhugsun á Grundartanga og fór undirritunin fram í sal mötuneytis Norðuráls á Grundartanga. Í uppbyggingunni felst að mótuð verði fyrirmyndar sjálfbærniumgjörð fyrir svæðið og unnið að uppbyggingu hringrásarhagkerfis með bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Grundartangi sem grænn…Lesa meira

true

Jafnaldrar kaupstaðarins fengu blóm

Við vígslu Þjónustumiðstöðvarinnar við Dalbraut, sem vígð var formlega í liðinni viku var skemmtileg uppákoma. Þá afhenti Guðríður Sigurjónsdóttir sem sæti á í menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar, öllum þeim sem verða 80 ára á árinu gjöf frá Akraneskaupstað. Þau eru fædd sama ár og kaupstaðurinn hlaut kaupstaðaréttindi árið 1942.Lesa meira

true

Fiskmóttaka fyrir alla á Akranesi

Í frétt í Skessuhorni í síðustu viku var m.a. sagt frá grillveislu sem Sæljón, félag smábátaeigenda á Akranesi, stóð nýverið fyrir við Akraneshöfn. Í fréttinni var missagt að Böðvar Ingvason væri starfsmaður Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar. Svo er ekki lengur. Hið rétta er að Böðvar rekur fiskmóttöku á Akranesi og þjónar þar hverjum þeim sem landa vill…Lesa meira

true

Stofnfundur Gleipnis var haldinn á Bifröst

Í gær fór fram stofnfundur Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi ses. Í Háskólanum á Bifröst var meðal annars skrifað undir stofnsamning og kosið í stjórn Gleipnis. Stofnfundur þessi er haldinn í framhaldi af undirritun viljayfirlýsingar í ágúst síðastliðnum þess efnis að nýsköpunar- og þróunarsetur yrði sett á stofn og var undirbúningsstjórn skipuð til þess…Lesa meira

true

Krapi og hálka á fjallvegum

Svo virðist sem veturinn virðist ekki viðurkenna að honum átti að vera lokið 20. apríl. Nú hylur snjóþekja allan norðurhluta landsins og þar er spáð slyddu eða snjókomu í dag. Skýjað verður með köflum hér sunnantil á landinu og stöku skúrir, en allvíða rigning eða slydda í kvöld. Samkvæmt Vegagerðinni er nú krapi á vegum…Lesa meira

true

Tíu slökkviliðsmenn útskrifaðir hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar

Í síðustu viku fór fram útskrift hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar á tíu nýliðum sem lokið hafa námi frá Brunamálaskóla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Námið saman stendur af fjórum bóklegum- og verklegum námshlutum. Nemendur fá m.a. þjálfun í hefðbundnu slökkvistarfi, reykköfun og björgun fólks úr bílslysum. Umsjón með náminu höfðu Sigurður Þór Elísson þjálfunarstjóri slökkviliðsins og…Lesa meira

true

Systurnar frá Íslandi komust í úrslit Eurovision

Framlag Íslands í söngvakeppni evrópsku söngvakeppninnar komst, eitt tíu laga, áfram í gærkvöldi í úrslit. Systur frá Íslandi og bróðir þeirra voru númer fjórtán á svið í höllinni í Tórínó á Ítalíu og stóðu þau sig vel með flutningi á laginu Með hækkandi sól. Á fimmtudagskvöld kemur svo í ljós hvaða lönd fylgja Íslandi í…Lesa meira

true

Eurovision er besta geðlyfið

Evrópska söngvakeppnin er haldin undir sérstökum formerkjum í ár vegna stríðsins í Úkraínu og samstöðunnar sem það hefur kallað fram meðal íbúa álfunnar. En það hefur reyndar alltaf verið sérstök stemning í kringum keppnina og þá ekki síst á forsendum tónlistarinnar sem er jú alþjóðleg í eðli sínu. Skessuhorn hafði upp á manni sem býr…Lesa meira

true

Fjöldi kajak ræðara á námskeiði á Arnarstapa

Yfir 60 kajak ræðarar voru saman komnir um liðna helgi á Arnarstapa á Snæfellsnesi til þess að njóta leiðsagnar og kennslu í meðferð bátanna. Hópnum var skipt í þrennt. Voru þátttakendur frá 15 þjóðlöndum á öllum aldri, eða frá 20 ára og upp í 80 ára, af báðum kynjum. Farið var yfir öryggisþætti og beitingu…Lesa meira

true

Aðalsteinn í innviðina

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur skipað Aðalstein Þorsteinsson í embætti skrifstofustjóra sveitarfélaga og byggðamála í ráðuneytinu. Aðalsteinn var valinn úr hópi margra hæfra umsækjenda að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd. Hann mun taka við embættinu 1. júní næstkomandi. Frá 2002 hefur hann starfað sem forstjóri Byggðastofnunar og á þeim tíma leitt stofnunina í gegnum umtalsverðar…Lesa meira