Fréttir

true

H veitingar hættar í Food Station

H Veitingar hafa hætt rekstri sínum í Food Station við Digranesgötu í Borgarnesi, en þar hefur starfsemin verið frá síðasta ári undir heitinu H Bistro & Pizza. Samkvæmt heimildum Skessuhorns eru viðræður í gangi við nýjan rekstraraðila í húsinu en ekki er hægt fara nánar út í það á þessu stigi. Húsið er í eigu…Lesa meira

true

Vefmyndavélar endurnýjaðar við hafnirnar

Vefmyndavélar hafa verið á höfnum Snæfellsbæjar um árabil og verið ánægja með þær, meðal annars í röðum brottfluttra, en einnig hjá þeim sem vilja fylgjast með veðurlagi. Gömlu vélarnar voru komnar til ára sinna og stóðust ekki tímans tönn hvað myndgæði varðar og má meðal annars sjá það með því að bera vefmyndavélina í Ólafsvík…Lesa meira

true

Framkvæmdir eru hafnar við stækkun Hótel Búða

Byrjað er að skipta út jarðvegi og undirbúa stækkun Hótels Búða á Snæfellsnesi. Þegar framkvæmdum verður lokið mun hótelið tvöfaldast að stærð og verða tæpir þrjú þúsund fermetrar. Herbergjafjöldi fer úr 28 í 52. Undir nýja hlutanum verður kjallari og þar verður pláss fyrir eldhús, geymslu og kæla, þvottahús og fleira. Við stækkunina verður þriðja…Lesa meira

true

Fimleikahúsið við Vesturgötu formlega vígt

Síðasta föstudag var formleg vígsla á fimleikahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Í ræðu Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra kom fram að langur aðdragandi var að ákvörðun um byggingu hússins og hófst hún í nóvember árið 2010 þegar starfshópur skipaður af bæjarráði Akraness skilaði af sér skýrslu þar sem mat var lagt á aðstöðu íþrótta í eigu…Lesa meira

true

Bið eftir læknatímum að lengjast

Erfiðlega hefur að undanförnu gengið að manna lausar stöður heilsugæslulækna á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, meðal annars í Borgarnesi. Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE segir í samtali við Skessuhorn að Þórir Bergmundsson framkvæmdastjóri lækninga hafi að undanförnu lagt mikla vinnu í að manna lausar stöður, en það hafi gengið erfiðlega að fá lækna í afleysingar. Íbúar…Lesa meira

true

Norðurálsmótið í golfi fór fram um helgina

Norðurálsmótið í golfi var haldið á laugardaginn hjá Golfklúbbnum Leyni á Garðavelli á Akranesi og var þetta jafnframt fyrsta golfmót sumarsins hjá Leyni. Keppnisfyrirkomulagið var 18 holu punktakeppni með forgjöf og var hámarksforgjöf hjá körlum 24 og hjá konum 28. Í punktakeppninni var Nói Claxton hlutskarpastur með 43 punkta, Tómas Haraldsson í öðru sæti með…Lesa meira

true

Sjávarútvegsfyrirtæki styðja rausnarlega við úkraínsku þjóðina

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa ákveðið að styrkja stjórnvöld í Úkraínu um eina milljóna bandaríkjadala, eða jafnvirði um 130 milljóna króna. Með þessu vilja fyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi leggja sitt af mörkum með von um að bundinn verði endir á hörmungar úkraínsku þjóðarinnar hið fyrsta. Haft verður samráð við íslensk stjórnvöld um ráðstöfun fjárins. Fyrirtækin sem í…Lesa meira

true

Kári náði jafntefli gegn Sindra

Kári lék sinn fyrsta leik í 3. deild karla í knattspyrnu í sumar þegar liðið mætti Sindra á laugardaginn og fór leikurinn fram á Sindravöllum á Höfn í Hornafirði. Það var lítið að frétta í fyrri hálfleik liðanna og staðan því markalaus í hálfleik, 0-0. Tólf mínútum fyrir leikslok kom Robertas Freidgeimas heimamönnum yfir og…Lesa meira

true

Víkingur Ó tapaði í fyrsta leik

Víkingur Ólafsvík tók á móti Völsungi frá Húsavík í fyrstu umferð í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli. Það byrjaði ekki vel fyrir heimamenn því á fyrstu mínútu leiksins skoraði Santiago Abalo fyrir Völsung og eftir tæplega tuttugu mínútna leik skoraði Ólafur Jóhann Steingrímsson annað mark gestanna. Víkingur…Lesa meira

true

Skilafrestur á aðsendum greinum er kl. 14 í dag

Nú styttist óðum í kosningar til sveitarstjórna, en þær verða nk. laugardag. Þeim fylgja jafnan talsverð skrif frambjóðenda og annarra sem koma vilja skilaboðum til þeirra. Ritstjórn Skessuhorn beinir þeirri frómu ósk til frambjóðenda að skila tímanlega inn aðsendum greinum fyrir blaðið sem prentað verður annað kvöld, þriðjudag. Greinar þurfa að vera komnar á póstfang…Lesa meira