Fimleikahúsið við Vesturgötu formlega vígt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðasta föstudag var formleg vígsla á fimleikahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Í ræðu Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra kom fram að langur aðdragandi var að ákvörðun um byggingu hússins og hófst hún í nóvember árið 2010 þegar starfshópur skipaður af bæjarráði Akraness skilaði af sér skýrslu þar sem mat var lagt á aðstöðu íþrótta í eigu Akraneskaupstaðar og mati á aðstöðu félaga innan ÍA. Niðurstaða starfshópsins var umfangsmikil en í stuttu máli var þar efst á lista bygging fimleikahúss.\r\n\r\nÍ fyrstu voru skoðaðir tveir valkostir um staðsetningu á húsinu, annað hvort á Jaðarsbökkum eða á Vesturgötu. Vesturgata varð síðan fyrir valinu og lauk hönnun á húsinu árið 2018. Fyrsta skóflustungan var tekin 27. ágúst sama ár og gerðu upphaflegar áætlanir að húsið yrði tilbúið í lok árs 2019 en Fimleikafélag Akraness flutti starfsemi sína inn í húsið í ágúst 2020. Að lokum þakkaði Sævar öllum þeim fjölmörgu aðilum sem hafa komið með einum eða öðrum hætti að byggingu hússins og fyrir frábært starf og góða samvinnu við að koma upp þessu glæsilega húsi sem er lögleg keppnishöll og einstaklega vel heppnað.\r\n\r\nAuk Sævars fluttu ávörp þau Eyrún Reynisdóttir framkvæmdastjóri FIMÍA, Þórdís Þráinsdóttir yfirþjálfari hjá FIMÍA, Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar og Hrönn Ríkharðsdóttir nýkjörinn formaður ÍA. Að því loknu var opin æfing hjá iðkendum FIMÍA sem gestum var boðið að fylgjast með.",
  "innerBlocks": []
}
Fimleikahúsið við Vesturgötu formlega vígt - Skessuhorn