Fréttir

true

Rótarý gaf til björgunarsveita og flóttafólks

Á síðasta ári stóð Rótarýklúbbur Borgarness fyrir fjáröflun meðal fyrirtækja og almennings í Borgarbyggð og nágrennis til þess að aðstoða Slökkvilið Borgarbyggðar við að festa kaup á stafrænum búnaði til æfinga og þjálfunar slökkviliðsmanna og þar með freista þess að koma málinu í farsælan farveg. Söfnun Rótarýklúbbsins gekk vonum framar og söfnuðust tæpar tvær milljónir…Lesa meira

true

Dimmiterað í FVA

Þessi fríði og föngulegi hópur eru væntanlegir útskriftarnemar úr Fjölbrautaskóla Vesturlands. Við lok hefðbundins náms og fyrir vorprófin er dimmiterað, skvett úr klaufunum eins og gengur. Myndin er fengin af vef skólans. Góða skemmtun!Lesa meira

true

Fjölmenni á fundi Miðbæjarsamtakanna Akratorgs

Nánast fullt hús var á opnum fundi Miðbæjarsamtakanna Akratorgs sem haldinn var í gær í Tónbergi á Akranesi og ljóst að íbúar eru áhugasamir um verðandi skipulag og hugmyndir um Akratorg og nærsvæði. Ólafur Páll Gunnarsson var fyrstur á mælendaskrá og fór yfir helstu áhersluatriði miðbæjarsamtakanna. Tilgangur þeirra er að vernda, efla og byggja upp…Lesa meira

true

„Stýrivaxtahækkunin er stríðsyfirlýsing við launafólk“

Eins prósentustigs hækkun Seðlabankans á stýrivöxtum hefur vakið hörð viðbrögð verkalýðsleiðtoga. Hækkun stýrivaxta er í raun 37%, en þeir fóru í einu vetfangi úr 2,75% í 3,75%. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig er Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, sem birti hreinskiptan pistil á Facebooksíðu sinni í gær: „Þessi ákvörðun Seðlabankans er í mínum huga…Lesa meira

true

Byggðasafnið í Görðum tilnefnt til íslensku safnaverðlaunanna

Á mánudaginn var tilkynnt hvaða söfn eru tilnefnd til íslensku safnaverðlaunanna 2022. Íslandsdeild alþjóðaráðs safna og Félag íslenskra safna og safnmanna standa saman að íslensku safnaverðlaununum, sem er viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Þetta er í tuttugasta og fyrsta skipti sem verðlaunin verða afhent. Í ár bárust vel á annan…Lesa meira

true

Starfsaldursviðurkenningar í Brákarhlíð

Á starfsmannafundi Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi á þriðjudaginn voru afhentar starfsaldursviðurkenningar til fimm starfsmanna í Brákarhlíð. Þeir starfsmenn sem fengu viðurkenningu voru Eyrún Baldursdóttir sem er búin að starfa samtals í fimm ár, Jórunn María Ólafsdóttir og Guðlín Erla Kristjánsdóttir sem eru búnir að starfa í Brákarhlíð í 15 ár, Þuríður Bergsdóttir sem…Lesa meira

true

Enn voru stýrivextir hækkaðir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í gærmorgun að hækka vexti bankans um eitt prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, eru því nú 3,75%. „Efnahagshorfur hafa heldur versnað frá febrúarspá Seðlabankans vegna neikvæðra áhrifa innrásar Rússlands í Úkraínu. Á hinn bóginn eru vísbendingar um talsverðan þrótt innlendra umsvifa. Slakinn í þjóðarbúinu virðist horfinn og…Lesa meira

true

Undirbjuggu leit

Björgunarsveitir um vestanvert landið voru á fyrsta tímanum í nótt kallaðar út til leitar að ferðamanni sem orðið hafði viðskila við hóp á svæðinu milli Búða og Hraunsmúla. Beiðni til sveitanna var síðan afturkölluð um klukkustund síðar þegar maðurinn skilaði sér heill á húfi.Lesa meira

true

Viðgerð á þaki Vinaminnis

Í byrjun vikunnar hófust framkvæmdir við þak Safnaðarheimilisins Vinaminnis á Akranesi. Þar er byrjað að taka af efsta hluta þaksins á húsinu og verður síðan settur þakdúkur í stað járnsins sem fyrir er. Það er fyrirtækið Þakdúklagnir ehf sem sér um verkið.Lesa meira

true

Með kannabis í bílnum

Á föstudaginn í liðinni viku var ökumaður tekinn fyrir of hraðan akstur við Fiskilæk í Melasveit en hann mældist á 131 kílómetra hraða. Þegar lögreglumenn fóru að ræða við ökumanninn fundu þeir kannabislykt í bílnum en ökumaðurinn kannaðist ekki við neitt slíkt. Hann var af erlendu bergi brotinn og ekki með lögheimili á Íslandi. Bíllinn…Lesa meira