
Jónína Margrét, Líf og Ragnar tóku þátt í pallborðsumræðum. Ljósm. vaks.
Fjölmenni á fundi Miðbæjarsamtakanna Akratorgs
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nánast fullt hús var á opnum fundi Miðbæjarsamtakanna Akratorgs sem haldinn var í gær í Tónbergi á Akranesi og ljóst að íbúar eru áhugasamir um verðandi skipulag og hugmyndir um Akratorg og nærsvæði. Ólafur Páll Gunnarsson var fyrstur á mælendaskrá og fór yfir helstu áhersluatriði miðbæjarsamtakanna. Tilgangur þeirra er að vernda, efla og byggja upp gamla miðbæinn og jafnframt að stuðla að viðsnúningi í þróun síðustu ára þannig að miðbærinn verði aftur hringiða verslunar, þjónustu og mannlífs. Ólafur Páll ræddi einnig um Gamla Landsbankahúsið sem er honum mikið hjartans mál og samtakanna sem leggja mikla áherslu á að bæjaryfirvöld færi starfsemi sína í húsið.\r\n\r\nPáll Jakob Líndal doktor í umhverfissálfræði var með fræðandi fyrirlestur sem nefndist Umhverfið og lífsgæðin – hvað skiptir máli? Páll Jakob fór um víðan völl og ræddi meðal annars um græn svæði og að tengingar við náttúruna skipi þar stærsta hlutverkið til þess að mannlíf verði blómlegt á slíkum svæðum. Sem dæmi nefndi hann Ráðhústorgið á Akureyri þar sem í skjóli einnar nætur var lagt gras á allt torgið og það varð á ný miðpunktur bæjarins.\r\n\r\nBjarnheiður Hallsdóttir fékk síðan þau Líf Lárusdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins, Ragnar B. Sæmundsson oddvita Framsóknar og frjálsra og Jónínu Margréti Sigmundsdóttur sem skipar annað sæti lista Samfylkingarinnar í sófann og ræddu þau mál miðbæjarins. Líf vildi sjá uppbyggingu á Merkurtúni, fleiri viðburði á Akratorgi og fá meira líf í miðbæinn og þá kannski með litlum fyrirvara. Ragnar sagði miðbæinn hafa drabbast niður á síðustu árum og það væri miklu meiri umræða í samfélaginu um mikilvægi þess að endurvekja miðbæinn. Jónína Margrét velti því upp að þeim langi til að endurhanna innkeyrsluna inn í miðbæinn og skapa meira pláss fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.\r\n\r\nVarðandi framtíð Gamla Landsbankahússins sagði Líf að það ætti að skoða möguleikana á þessu húsi og nefndi að mathöll á neðstu hæðinni væri fýsilegur kostur. Ragnar nefndi skrifstofu Sementsverksmiðjunnar sem annan kost fyrir ráðhús með tengingu við uppbyggingu á Sementsreit. Jónína Margrét sagði það heillandi kost að hafa bæjarskrifstofurnar í Gamla Landsbankahúsinu en það væri margt sem þyrfti að skoða varðandi þetta fallega hús.\r\n\r\nEftir fyrirspurnir úr sal flutti Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness síðasta erindi kvöldsins og sagði meðal annars að Miðbæjarsamtökin væru dæmi um það þegar fólk í samfélaginu virkilega ætli sér að taka þátt í valdeflingu og stuðla að frábærum bæ. „Hvað segjum við aðila sem segir: Ég vil setja upp hoppikastala í miðbænum, skautasvell, mathöll eða vatnsleikjagarð fyrir börn í miðbænum? Við segjum bara, Já og finnum leiðina til þess. Við eigum að nota þetta einstaka tækifæri og eigum að vera tilbúin að opna á möguleikana.“\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53188,53189\"]\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}